Viðskipti innlent

Eyrir keypti fyrir 6,7 milljarða í hlutafjárútboði Marels

Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels og forstjóri Eyris Invest.
Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels og forstjóri Eyris Invest.

Eyrir Invest, stærsti hluthafi Marels, keypti fyrir 6,7 milljarða í hlutafjárútboði félagsins sem lauk í síðustu viku. Það er rétt tæplega helmingur hlutafjárins sem var í útboðinu.

Auk þess keypti Grundtvig Invest, sem er þriðji stærsti hluthafi Marels, hlutabréf fyrir 833 milljónir.

Meðal annarra sem keyptu í hlutafjárútboðinu voru Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris og stjórnarformaður Marels, og Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×