Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 9,2% í mars

Vísitala framleiðsluverðs í mars var 137,2 stig og hækkaði um 9,2% frá febrúar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 157,0 stig, sem er hækkun um 12,6% frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 168,1 stig, hækkaði um 20,8%.

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,0% frá febrúar en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,1%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,9 milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 15,1%.

Frá mars 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5% og verðvísitala sjávarafurða um 24,8%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 10,3% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 5,6%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×