Hagnaður Eik banka nam 122 milljónum íslenskra króna 25. apríl 2008 16:53 Eik banki í Þórshöfn.
Eik Banki birti í gær uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung og var þar með fyrsta fjármálafyrirtækið í Kauphöllinni til að birta afkomutölur. Eik banki er með tvíhliða skráningu á Íslandi og í Danmörku en bankinn var skráður á markað í fyrrasumar. Hagnaður bankans á fjórðungnum nam 7,9 milljónum danskra króna sem svarar til 122 milljóna íslenskra króna og dróst afkoman saman um 93% frá sama tímabili árið áður. Arðsemi eiginfjár á fjórðungnum var 0,4% samanborið við 7,0% í fyrra. Arðgreiðslur dragast samanHreinar rekstrartekjur námu 119,4 milljónum danskra króna og lækkuðu um 40% á milli ára. Ástæður lækkunarinnar má rekja til taps á hlutabréfum og lægri arðgreiðslu frá SPRON heldur en í fyrra. Heildararðgreiðslur dragast saman um 61,1 milljón danskra króna frá sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur skiptust þannig að hreinar vaxtatekjur námu 160 milljónum danskra króna (+88%), þóknanatekjur voru 39,8 milljónir danskra króna (+39%) og gengistap nam 82,9 milljónum danskra króna í stað 83,1 milljón hagnað í fyrra. Rekstrarkostnaður var alls 97,6 milljónir danskra króna og jókst um 45%. Efnahagsreikningur færeyska bankans stóð í 20,6 milljörðum danskra króna í lok fjórðungsins og dróst saman um tæp 5% frá áramótum. Útlán jukust lítillega frá áramótum og hlutfall innlán á móti útlánum var 82,3% í lok 1F 2008. Hafa ber í huga að samanburður á milli ára er erfiður þar sem danski hluti SkandiaBanken og sá rekstur sem áður heyrði undir Kaupþing Færeyjar komu inn í reikninga Eik í fyrsta skipti á tímabilinu.Standa fastir við fyrri spáÞrátt fyrir að núverandi markaðsaðstæður séu óhagstæðar standa stjórnendur Eik Banka keikir við fyrri spá sína um að hagnaður fyrir gangvirðisbreytingu eigna, afskriftir útlána og skatta verði 335 milljónir danskra króna á árinu, jafnvirði 5,2 milljarða íslenskra króna. Heimild: Hálf-fimm fréttir Kaupþings.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira