Ég held ég hafi bara aldrei lent í öðru eins 10. janúar 2008 00:01 Sverre Jakobsson
Sverre Andreas Jakobsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, fékk slæma vírussýkingu á LK-mótinu í Danmörku um síðustu helgi og gat ekki leikið síðasta leik Íslands í mótinu gegn Danmörku. „Þetta eru búnir að vera svakalegir dagar og ég held ég hafi bara aldrei lent í öðru eins," sagði Sverre sem byrjaði að finna fyrir óþægindunum fyrir leik Íslands og Noregs á laugardeginum. „Ég fann að ég var eitthvað að veikjast fyrir leikinn gegn Norðmönnum en lét mig hafa það að spila leikinn og hélt að þetta væri nú ekkert stórmál. Mig grunaði helst að allir þessir próteindrykkir og vítamín sem við erum búnir að vera að borða hafi farið eitthvað illa í mig, en „partíið" byrjaði svo á laugardagskvöldið. Ég svaf lítið næstu nætur á eftir og gat ekki haldið neinu niðri," sagði Sverre sem hefur mikið til verið á sjúkrahúsi síðan hann kom aftur heim til Íslands á sunnudagskvöld. „Það var svo strax reynt að koma einhverjum mat og vökva í mig og ég hef verið í meðferð á sjúkrahúsi síðan á sunnudagskvöld þar sem ég fæ vökvanæringu í æð. Ég var enn mjög slappur á mánudaginn en leið strax betur á þriðjudeginum og ældi ekki í einhverja tíu tíma sem var mikil framför," sagði Sverre í léttum dúr og leið að sögn enn betur í gær. „Það er kannski merki um að mér sé farið að líða betur að ég get grínast með þetta og get hlegið að sjálfum mér, en mér var ekki hlátur í huga um helgina og á mánudaginn," sagði Sverre sem stefnir ótrauður að því að vera með á Evrópumótinu sem hefst 17. janúar næstkomandi. „Ég ætla að taka því rólega og reyna ná mér sæmilegum á næstu dögum fram að helgi og svo vonandi get ég farið að gera eitthvað með landsliðinu fljótlega. Það hefur allavega enginn afskrifað það að ég taki þátt í Evrópumótinu enn þannig að ég sé enga ástæðu til annars en að vera bjartsýnn á að geta verið með í mótinu," sagði Sverre sem var útskrifaður af sjúkrahúsinu í gær, en fer aftur til skoðunar á morgun.
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Sjá meira