Sigurður ætti að líta í eigin barm með heimildarlaus viðskipti 25. mars 2008 21:22 Finnur Ingólfsson segir það af og frá að eitthvað hafi verið óeðlilegt við viðskiptahætti í kringum viðskilnað hans við Icelandair.
Athafnamaðurinn Finnur Ingólfsson vísar ásökunum Sigurður G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns í Morgunblaðinu í dag á bug. Í greininni sakar Sigurður Finn um að hafa hagnast verulega á kostnað félags í eigu Samvinnutrygginga í heimildarlausum viðskiptum þeirra á milli við viðskilnað Finns og Icelandair í ágúst í fyrra. Sigurður bendir á að Finnur hafi stýrt eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga í umboðsleysi ásamt öðrum og spyr hvort þessir aðilar hafi ekki verið andvaka yfir páskana vegna rýrnunar eiginfjár eignarhaldsfélagsins meðal annars vegna viðskipta við félag Finns. "Ég hef ekki lesið greinina og læt mér í léttu rúmi liggja hvað Sigurður skrifar," segir Finnur í samtali við Vísi. Finnur segir það af of frá að eitthvað hafi verið athugavert við viðskilnað sinn við Icelandair. Aðspurður um heimildarleysi fyrir viðskiptunum sem Sigurður talar um í grein sinni segir Finnur að Sigurður G. ætti að líta í eigin barm þegar kæmi að heimildarlausum viðskiptum. "Ég nefni sem dæmi SPH," segir Finnur. Sigurður segir í grein sinni, sem ber fyrirsögnina "Eru samvinnumenn aðrir en Finnur andvaka?", að tveir af fyrrum ráðherrum Framsóknarflokksins Valgerður Sverrisdóttur og áðurnefndur Finnur hafi ásamt öðrum flutt eignir og skuldir Samvinnutrygginga yfir í hlutafélag sem kallað er Gift fjárfestingafélag ehf. Sigurður segir að Gift hafi átt tæpan þriðjungshlut í Icelandair í gegnum félagið Langflug. Láðst hafi þó að geta þess á aðalfundi Samvinnutrygginga að meðeigandi í Langflugi væri FS7 sem er félag í eigu Finns Ingólfssonar. "Finnur losaði félag sitt úr þessu samkrulli við Gift með ævintýralegum hætti í lok ágúst og byrjun september 2007. Var gengi Icelandair í viðskiptum FS7 og Giftar 31,5 kr. á hlut. Þetta virðist hæsta skráða verð á hlutum í Icelandair. Gengi þess er nú 24,30 kr. á hlut," segir Sigurður í grein sinni. Hann endar hana á þeim orðum að vonandi hafi hinir umboðslausu framsóknar- og samvinnumenn ekki verið andvaka yfir páskana vegna augljósrar rýrnunar eiginfjár Giftar meðal annars vegna heimildarlausra viðskipta við FS7.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira