Spá verðbólgunni í átján ára hámark Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. apríl 2008 06:00 Við mjólkurinnkaupin Verðbólga á eftir að aukast fram á sumar áður en hún hjaðnar á ný, segir í spá greiningardeildar Landsbankans. Fréttablaðið/Valli
Verðbólga nær 18 ára hámarki í sumar gangi eftir ný spá greiningardeildar Landsbankans. Að því gefnu að veiking krónunnar gangi að hluta til baka er í spánni gert ráð fyrir að verðbólga fari hæst í ríflega 10 prósent í sumar. „Haldist krónan áfram veik má reikna með að verðbólgan fari í 13 prósent,“ segir þar jafnframt. „Við gerum ráð fyrir að verðbólga frá upphafi til loka þessa árs verði 8,4 prósent,“ segir í spá bankans og gert ráð fyrir að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist um mitt ár 2009. „En í kjölfarið fer verðbólga þó tímabundið hækkandi á ný.“ Gert er ráð fyrir að vegna aukinnar verðbólgu verði samið um nokkra viðbótarhækkun launa við endurskoðun kjarasamninga í febrúar á næsta ári. Snarpt fall krónunnar er sagt ráða mestu um vaxandi verðbólgu, en fréttir bendi til að gengislækkunin skili sér hratt í verð á innfluttum vörum. Á móti kemur að hægt hefur á fasteignamarkaði og telur greiningardeildin að á næstu mánuðum muni fasteignaverð draga úr hækkun verðbólguvísitölunnar í stað þess að ýta undir hana líkt og raunin hafi verið síðustu misseri. Í fráviksspá bankans er ráð fyrir því gert að stjórnvöld grípi ekki tímanlega til viðeigandi aðgerða og krónan verði veik áfram. „Slík gengisþróun þýðir mun meiri verðbólgu, eða 13 prósent þegar mest lætur í sumar.“
Mest lesið Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Sjá meira