Að gefnu tilefni Sigmar Eðvarsson skrifar 26. júlí 2008 06:00 Í Fréttablaðinu, fimmtudaginn 24. júlí, beina Guðmundur Guðmundsson og Ólafur R. Sigurðsson nokkrum spurningum til mín fyrir hönd Frjálslynda flokksins í Grindavík. Sjálfsagt er að svara þeim. Kostnaður af bæjarstjóraskiptum er hvergi kominn í ljós og verður miklu meiri heldur en hefur verið sagt þegar öll kurl koma til grafar. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur gerðu saman ráðningarsamning við Ólaf Örn Ólafsson. Samningurinn var eins og samningur sem Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur gerðu 1998 við forvera Ólafs, Einar Njálsson. Sams konar samningur, sama krónutala. Þegar samningurinn við Ólaf var gerður voru áform flokkanna að starfa saman út kjörtímabilið. En vegna eiginhagsmunasemi Jónu Kristínar og valdagræðgi hrifsaði hún til sín sætið og gerði þar með bæjarstjórastólinn að pólitísku bitbeini. Það er eitt að gera samning annað að rifta. Þegar samningi er rift þá kostar það peninga og sú ábyrgð mun alltaf hvíla á herðum þeirra sem það gerðu. Framsóknarflokkur og Samfylking gerðu starfslokasamninginn við Ólaf Örn og enginn annar. Þess vegna er hann á þeirra ábyrgð núna. Útreiknaður launasamningur við nýjan bæjarstjóra, sem nýr meirihluti hefur sagt að sé sá kostnaður sem bæjarbúar muni bera, er 985.000 kr. á mánuði, auk aksturskostnaðar upp á 120.000 kr. og vaxtatap að jafnaði 243.000 kr. á mánuði. Samtals hljóðar þetta upp á heilar 40.296.144 kr. að núvirði. Í Grindavík búa 2.720 íbúar og þýðir þetta 14.815 kr. skatt á hvern íbúa. Ég gat ekki greitt atkvæði mitt með nýjum ráðningarsamningi við Jónu Kristínu, þó svo að hann væri sagður 20% lægri en það eru ósannindi því bílastyrkurinn var hækkaður um 25%. Mér finnst í lagi að greitt sé vel fyrir reynslumikinn og vel menntaðan mann með rekstrar- og stjórnunarhæfileika eins og bæjarstjóri þarf að vera. Í þessu tilfelli finnst mér mikið vanta upp á. Að lokum vil ég benda á að Ólafur og Guðmundur ættu að snúa sér með allar þessar spurningar til Björns Haraldssonar, bæjarfulltrúa Frjálslyndaflokksins í Grindavík. Hann studdi þessi bæjarstjóraskipti með því að greiða því atkvæði á síðasta bæjarstjórnarfundi. Hann hlýtur að vita hvað hann var að styðja. Höfundur er fulltrúi D-lista í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir Skoðun Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Skoðun Skoðun Börn og kennarar geta ekki beðið lengur Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson skrifar Skoðun Meira lýðræði fyrir Múlaþing Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Börnin á bakkanum Þórey María E. Kolbeins skrifar Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan skrifar Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Í Fréttablaðinu, fimmtudaginn 24. júlí, beina Guðmundur Guðmundsson og Ólafur R. Sigurðsson nokkrum spurningum til mín fyrir hönd Frjálslynda flokksins í Grindavík. Sjálfsagt er að svara þeim. Kostnaður af bæjarstjóraskiptum er hvergi kominn í ljós og verður miklu meiri heldur en hefur verið sagt þegar öll kurl koma til grafar. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur gerðu saman ráðningarsamning við Ólaf Örn Ólafsson. Samningurinn var eins og samningur sem Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur gerðu 1998 við forvera Ólafs, Einar Njálsson. Sams konar samningur, sama krónutala. Þegar samningurinn við Ólaf var gerður voru áform flokkanna að starfa saman út kjörtímabilið. En vegna eiginhagsmunasemi Jónu Kristínar og valdagræðgi hrifsaði hún til sín sætið og gerði þar með bæjarstjórastólinn að pólitísku bitbeini. Það er eitt að gera samning annað að rifta. Þegar samningi er rift þá kostar það peninga og sú ábyrgð mun alltaf hvíla á herðum þeirra sem það gerðu. Framsóknarflokkur og Samfylking gerðu starfslokasamninginn við Ólaf Örn og enginn annar. Þess vegna er hann á þeirra ábyrgð núna. Útreiknaður launasamningur við nýjan bæjarstjóra, sem nýr meirihluti hefur sagt að sé sá kostnaður sem bæjarbúar muni bera, er 985.000 kr. á mánuði, auk aksturskostnaðar upp á 120.000 kr. og vaxtatap að jafnaði 243.000 kr. á mánuði. Samtals hljóðar þetta upp á heilar 40.296.144 kr. að núvirði. Í Grindavík búa 2.720 íbúar og þýðir þetta 14.815 kr. skatt á hvern íbúa. Ég gat ekki greitt atkvæði mitt með nýjum ráðningarsamningi við Jónu Kristínu, þó svo að hann væri sagður 20% lægri en það eru ósannindi því bílastyrkurinn var hækkaður um 25%. Mér finnst í lagi að greitt sé vel fyrir reynslumikinn og vel menntaðan mann með rekstrar- og stjórnunarhæfileika eins og bæjarstjóri þarf að vera. Í þessu tilfelli finnst mér mikið vanta upp á. Að lokum vil ég benda á að Ólafur og Guðmundur ættu að snúa sér með allar þessar spurningar til Björns Haraldssonar, bæjarfulltrúa Frjálslyndaflokksins í Grindavík. Hann studdi þessi bæjarstjóraskipti með því að greiða því atkvæði á síðasta bæjarstjórnarfundi. Hann hlýtur að vita hvað hann var að styðja. Höfundur er fulltrúi D-lista í Grindavík.
Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson skrifar
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar