Flugfélag Íslands selur reksturinn á Twin Otter vélunum 9. maí 2008 14:00
Flugfélag Íslands og Friðrik Adolfsson hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á Twin Otter rekstri Flugfélags Íslands. Kaupandinn, Friðrik Adolfsson, skrifar undir yfirlýsinguna fyrir hönd nokkurra fjárfesta, þar á meðal Norðanflugs. Friðrik er núverandi sölustjóri leiguflugs hjá Flugfélagi Íslands og hefur meðal annars verið ábyrgur fyrir umfangsmiklum leiguverkefnum Twin Otter á Grænlandi. Hann mun láta af störfum hjá Flugfélagi Íslands og snúa sér alfarið að þessum rekstri. Á næstu dögum verður gengið frá endanlegum kaupsamningi og hefðbundin áreiðanleikakönnun mun fara fram. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið fyrir næstu mánaðarmót og að nýjir aðilar muni taka við rekstrinum frá 1. júní næstkomandi. Kaupverð er trúnaðarmál. Saga Capital Fjárfestingarbanki hafði milligöngu um kaupin. Um er að ræða tvær Twin Otter flugvélar og tengdan rekstur en helstu verkefni hafa verið áætlunarflug út frá Akureyri til Grímseyjar, Vopnafjarðar og Þórshafnar, leiguverkefni á Grænlandi og viðhaldsverkefni í viðhaldsstöð félagsins á Akureyri. Um tuttugu manns vinna við rekstur Twin Otter vélanna á Akureyri, aðallega flugvirkjar og flugmenn. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, er ánægður með viljayfirlýsinguna og segir að hún sé skref í átt að því markmiði Flugfélags Íslands að starfsemin í kringum Twin Otter vélarnar haldist á Akureyri og geti enn frekar vaxið og dafnað í höndum nýrra eigenda. Friðrik Adolfsson, sem fer fyrir hópi fjárfestanna, segir að mikil tækifæri til vaxtar felist í þessum rekstri. Mikil uppbygging eigi sér stað á Grænlandi sem kalli á aukin verkefni fyrir Twin Otter vélarnar. Þá sé verið að skoða fleiri vaxtarbrodda, meðal annars tengda fyrirhugaðri stækkun Akureyrarflugvallar.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Sjá meira