Bjarni Ármanns íhugar að flytja til Noregs 25. janúar 2008 11:34 Bjarni Ármannsson er líklegast að flytja til Noregs í sumar.
Athafnamaðurinn Bjarni Ármannsson íhugar að flytja með fjölskyldu sína til Noregs. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi í morgun. "Jú, það er rétt. Við hjónin erum að skoða vandlega þann möguleika að flytja til Noregs í sumar eða næsta haust. Það hefur engin endanleg ákvörðun verið tekin en ef af verður munum við flytja til Osló," segir Bjarni. Og hann er ekki að hrekjast frá landinu nema síður sé. "Ég keypti hlut í Glitni Property Holding fyrir skömmu og er með nokkrar aðrar fjárfestingar í farvatninu. Við höfum verið mikið í Noregi og kunnum afskaplega vel við okkur þar. Lífið þar er friðsælt og þægilegt," segir Bjarni sem sér fram á góða daga hlaupandi upp skógivaxnar hlíðar eða skíðandi niður snæviþaktar brekkurnar. Bjarni hefur verið fastagestur í Reykjavíkurmaraþoninu og lofar að mæta í ár þótt hann verði ef til vill fluttur til Noregs. "Ég hef tekið þátt í maraþoni í öðrum löndum þannig að það verður ekkert vandamál. Ég mæti í Reykjavíkurmaraþonið," segir Bjarni. Fjölskyldan býr nú í glæsilegu einbýlishúsi í Bakkavör á Seltjarnarnesi en það hús verður ekki selt.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira