Kaupþing frestar evruskráningu 7. mars 2008 17:28
Stjórn Kaupþings hefur ákveðið að fresta breytingu á starfrækslugjaldmiðli sínum úr krónu í evru fram til næstu áramóta. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins. Þar segir einnig að miðað hafi verið við að bankinn myndi breyta starfrækslugjaldmiðli sínum í byrjun þessa árs enda hafi vægi evru í rekstri bankans aukist á undanförnum árum. „Stjórnin er enn staðráðin í að breyta starfrækslugjaldmiðlinum í evrur til að tryggja að reikningar bankans gefi hverju sinni rétta og skýra mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar. Umsóknarferlið hefur hins vegar tekið lengri tíma en búist var við og nú þegar liðnir eru rúmlega tveir mánuðir af reikningsárinu yrði erfitt að breyta starfrækslugjaldmiðlinum miðað við 1. janúar 2008, einnig í ljósi óróleikans á mörkuðum," segir í tilkynningunni. Stjórn bankans leggur fram tillögu á fyrir aðalfund, sem nú stendur yfir, þar sem gert er ráð fyrir að heimila stjórn að ákveða að hlutafé bankans verði skráð í evrum í stað íslenskra króna. Gert er ráð fyrir því að uppgjör hlutabréfa í gjaldmiðlum öðrum en íslenskum krónum verði mögulegt á Íslandi fyrir lok árs 2008. Stjórnin telur æskilegt að breyta starfrækslugjaldmiðlinum á sama tíma og hlutaféð er skráð í evrum og því sé breytingunni frestað og núverandi umsókn hjá stjórnvöldum dregin til baka. Eins og kunnugt er lagðist Ársreikningskrá gegn því að Kaupþing fengi að gera upp í evrum en þá ákvörðun hafði Kaupþing kært til fjármálaráðherra.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira