Viðskipti innlent

Tónlist.is í iTunes

Svona lítur þetta út í iTunes
Svona lítur þetta út í iTunes

Notendum Tónlist.is býðst nú að sækja sér hugbúnað sem hægt er að samtengja við iTunes eða Windows Media Player. Tilgangurinn með forritinu er að gera Tónlist.is aðgengilegri fyrir notendur en áður hefur verið.

Í forritinu geta notendur skráð sig inn með sínu notendanafni og eru þar með orðnir beintengdir við vefinn. Þegar lög/plötur eru sótt eru þau sett sjálfkrafa inn í iTunes lagalista sem gerir þér kleift að samstilla efni af Tónlist.is við iPod eða iPhone.

Þess má geta að gæði aac hljóðskráa hafa verið aukin fyrir iTunes, iPod og iPhone ásamt innfelldu plötuumslagi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×