Viðskipti innlent

Samþykkt að taka 365 hf. af markaði

Ari Edwald forstjóri 365
Ari Edwald forstjóri 365

Á hluthafafundi 365 hf. sem haldinn var í dag var samþykkt samhljóða að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu hlutabréfa félagsins úr kauphöllinni.

Hluthafar sem fara með 88,5% atkvæða voru mættir til fundarins. Þar var einnig samþykkt að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í félaginu er þess óska á genginu 1.20. Gengi félagsins við lokum markaða í dag var 1.14.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×