„Við erum ekki í vandræðum“ 1. febrúar 2008 14:00 Lýður Guðmundsson stjórnarformaður Exista. „
Það hafa gengið sögur um að félagið eigi í erfiðleikum með lausafé en eins og kom fram erum við með lausafé fram yfir mitt næsta ár og það getur hvaða fjármálastofnun sem er verið stolt af því," sagði Lýður Guðmundsson stjórnarformaður Exista í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. Lýður var spurður út í þær sögur sem hafa gengið um félagið og sagði hann þessar sögur vera kjaftasögur sem þeir hafi ákveðið að tjá sig ekki um fyrr en í dag, eftir að uppgjörið varð ljóst. „Það hafa einnig gengið sögur um að eigið fé okkar sé uppurið sem er rangt en það er um 22 prósent eins og komið hefur fram. Í þriðja lagi hefur komið fram að við höfum neyðst til að selja okkar kjarneignir sem er rangt og einnig að Exista eigi í vandræðum, sem er líka rangt." Lýður sagði að vissulega væri rétt að verðmæti hafi tapast í kjölfar lækkunnar félagsins og það væri leitt en þar með væri ekki öll sagan sögð. „Menn verða nefnilega að skilja á milli þess að verðmæti hafi lækkað og að menn séu í vandræðum. Við erum ekki í vandræðum vegna þess að við bjuggum vel í haginn áður en það kom að markaðir lækkuðu." Exista var nokkuð gagnrýnt fyrir uppgjörsaðferðir í níu mánaða uppgjöri félagsins þar sem óskráð félag í austur-evrópu var endurmetið en enginn veit hvaða félag það er. „Því miður er staðan ennþá sú að ég mun ekki upplýsa um þetta fyrirtæki hér og það er af samkeppnisástæðum," sagði Lýður. Hann sagði félagið enn vera í eigu Exista en sagði jafnframt: „Það er svoleiðis með rekstur allra fyrirtækja hvort sem þau eru á markaði eða ekki að það eru alltaf einhverjir hlutir sem ekki er hægt að upplýsa markaðinn um. Hvort sem það er stöðutaka, upplýsingar um stöðutöku í félögum, fjármögnun eða viðskiptakjör."
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira