Spá óbreyttri verðbólgu í maí 6. maí 2008 11:29 Ingólfur Bender er forstöðumaður greiningardeildar Glitnis.
Greiningardeild Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,9 prósent milli apríl og maí og ársverðbólga verði því áfram 11,8 prósent. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis að reikna megi með að áhrifa vegna gengislækkunar krónunnar muni enn gæta í maí þó svo að stærsti kúfurinn sé liðinn hjá. Eldsneytisverð haldi áfram að hækka og margt bendi til þess að enn sé nokkur verðþrýstingur á matvörumarkaði sem enn hafi ekki skilað sér út í verðlag og nægir að nefna verð á mjólk og mjólkurvörum í því sambandi. Greiningardeildin býst enn fremur við lítilsháttar verðlækkun á nafnverði húsnæðis á árinu en sú lækkun sé þó aðeins brot af þeirri hækkun sem átti sér stað á síðasta ári. „Við teljum líklegt að húsnæðisverð eins og Hagstofan mælir það muni lækka lítillega í maí og að markaðsverð húsnæðis lækki um tæplega 4% yfir árið og að lítilleg lækkun verði einnig á árinu 2009," segir í Morgunkorninu. Býst við að verðbólga minnki hratt frá og með haustinu Frá og með haustinu telur Glitnir að hratt muni draga úr árshraða verðbólgunnar og að hún verði nálægt átta prósentum í árslok og að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans náist um mitt næsta sumar. „Forsendur þess að þetta gangi eftir eru fyrst og fremst þær að gengi krónunnar taki að hækka á ný í sumar og að krónan styrkist hægt og bítandi út spátímabilið. Jafnframt skiptir ró á vinnumarkaði miklu. Verði farið af stað með nýjar og meiri launakröfur en þegar hefur verð samið um eykst hættan á víxlverkun launa, verðbólgu og gengis en slíkt myndi óhjákvæmilega hafa aukna verðbólgu í för með sér," segir einnig í Morgunkorninu.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Sjá meira