Dagvöruverslun jókst um 8,6% í desember 14. janúar 2008 09:17
Velta í dagvöruverslun jókst um 8,6% í desember síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður á breytilegu verðlagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að á milli mánaðanna nóvember og desember jókst velta dagvöruverslunar um 33,5%. Vöxtur í jólaverslun með dagvöru var álíka mikill og hann hefur verið að jafnaði undanfarin fimm ár. En vert er að hafa í huga að töluverð verðlækkun varð á þessum vörum 1. mars s.l. vegna lækkunar á virðisaukaskatti og afnámi vörugjalda. Velta í dagvöru allt árið 2007 var 10,4% meiri en árið áður á breytilegu verðlagi. Í fataverslun jókst veltan um 92,8% í desember miðað við nóvember þar á undan og velta skóverslunar jókst um 65% á milli þessara mánaða. Mælingar Rannsóknaseturs verslunarinnar á smásöluvísitölu fata- og skóverslunar hófust í janúar 2007 og því er ekki til samanburður á þessum tegundum verslunar frá desember 2006. Sala áfengis jókst um 4,0% í desember miðað við sama mánuð árið áður á breytilegu verðlagi og 2,4% á föstu verðlagi. Aukning í áfengissölu milli nóvember og desember var 60% á breytilegu verðlagi og 60,5% á föstu verðlagi. Þetta er mun minni söluaukning á milli ára en sést hefur undanfarin ár. Í fyrra nam söluaukning áfengis milli ára 9,6%. Í desember jókst velta í húsgagnaverslun um 9,3% á breytilegu verðlagi miðað við mánuðinn á undan og um 9,7% á föstu verðlagi. Í nóvember nam veltuaukning í húsgagnaverslun 19,2% frá mánuðinum þar á undan og því ljóst að jólaverslun með húsgögn hefur verið nokkuð lífleg tvo síðustu mánuði ársins
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira