Fjögur tonn af sparifatnaði 2. desember 2008 06:00 Örn Ragnarsson skrifar um fatasöfnun Rauða krossins: Rauði krossinn þakkar öllum þeim sem „gáfu af sér“ laugardaginn 22. nóvember í Sparifatasöfnun félagsins. Landsmenn sýndu hug í verki, rýmdu til í skápum og mættu með fulla poka af sparifatnaði á tiltekna móttökustaði. Starfsfólk Vífilfells gerði úr átakinu sinn eigin fjölskyldudag og safnaði innan fyrirtækisins. Allir sem komu að sparifatasöfnuninni, eiga okkar bestu þakkir skildar! Tæp fjögur tonn af sparifatnaði söfnuðust. Minnst safnaðist af barnafötum og bendum við fólki á að enn er hægt að gefa spariföt beint til Fatasöfnunar Rauða krossins að Skútuvogi 1 í Reykjavík. Fyrir rúmum mánuði var þriðja Rauða kross verslunin opnuð á Laugavegi 116 rétt hjá Hlemmi. Þar fer nú einnig fram (spari-) fataúthlutun á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudögum milli kl. 10 og 14 og er gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin. Auk nýju verslunarinnar eru Rauða kross verslanir á Laugavegi 6 í Reykjavík og Strandgötu 24 í Hafnarfirði. Opnunartímar búðanna tveggja á Laugavegi eru mán.-fös. 10-18, lau. 12-16 og á Strandgötu mán.-fös. 12-18 en lokað á laugardögum. Sextíu sjálfboðaliðar skiptast á að standa vaktina í búðunum þremur, sjá um úthlutun á fatnaði og flest það sem fellur til við reksturinn. Á höfuðborgarsvæðinu sér Rauði krossinn, í samstarfi við Sorpu, um söfnun á fatnaði alla daga ársins. Um tólf sjálfboðaliðar sjá um að taka á móti og flokka hluta fatnaðarins sem safnað er í Fatasöfnun Rauða krossins. Þessi fatnaður fer síðan í verslanirnar til sölu, úthlutunar og einnig til nauðstaddra erlendis, en stór hluti af fatnaðinum er seldur óflokkaður beint til útlanda. Allur hagnaður af sölu fatnaðarins rennur í Hjálparsjóð Rauða kross Íslands. Sjálfboðaliðar í verslunum og við fataúthlutun Rauða krossins eru komnir í jólaskap og hlakka til að sjá sem flesta fyrir jólin – svo „Siggi fái síðar buxur og Solla bláan kjól“. Höfundur er verkefnastjóri Fatasöfnunar Rauða krossins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er engin fréttamennska í þessu landi lengur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Hugleiðing um barnamenningu í Mosfellsbæ í aðdraganda kosninga Guðrún Rútsdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar skipta máli Arndís Bára Pétursdóttir skrifar Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Örn Ragnarsson skrifar um fatasöfnun Rauða krossins: Rauði krossinn þakkar öllum þeim sem „gáfu af sér“ laugardaginn 22. nóvember í Sparifatasöfnun félagsins. Landsmenn sýndu hug í verki, rýmdu til í skápum og mættu með fulla poka af sparifatnaði á tiltekna móttökustaði. Starfsfólk Vífilfells gerði úr átakinu sinn eigin fjölskyldudag og safnaði innan fyrirtækisins. Allir sem komu að sparifatasöfnuninni, eiga okkar bestu þakkir skildar! Tæp fjögur tonn af sparifatnaði söfnuðust. Minnst safnaðist af barnafötum og bendum við fólki á að enn er hægt að gefa spariföt beint til Fatasöfnunar Rauða krossins að Skútuvogi 1 í Reykjavík. Fyrir rúmum mánuði var þriðja Rauða kross verslunin opnuð á Laugavegi 116 rétt hjá Hlemmi. Þar fer nú einnig fram (spari-) fataúthlutun á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudögum milli kl. 10 og 14 og er gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin. Auk nýju verslunarinnar eru Rauða kross verslanir á Laugavegi 6 í Reykjavík og Strandgötu 24 í Hafnarfirði. Opnunartímar búðanna tveggja á Laugavegi eru mán.-fös. 10-18, lau. 12-16 og á Strandgötu mán.-fös. 12-18 en lokað á laugardögum. Sextíu sjálfboðaliðar skiptast á að standa vaktina í búðunum þremur, sjá um úthlutun á fatnaði og flest það sem fellur til við reksturinn. Á höfuðborgarsvæðinu sér Rauði krossinn, í samstarfi við Sorpu, um söfnun á fatnaði alla daga ársins. Um tólf sjálfboðaliðar sjá um að taka á móti og flokka hluta fatnaðarins sem safnað er í Fatasöfnun Rauða krossins. Þessi fatnaður fer síðan í verslanirnar til sölu, úthlutunar og einnig til nauðstaddra erlendis, en stór hluti af fatnaðinum er seldur óflokkaður beint til útlanda. Allur hagnaður af sölu fatnaðarins rennur í Hjálparsjóð Rauða kross Íslands. Sjálfboðaliðar í verslunum og við fataúthlutun Rauða krossins eru komnir í jólaskap og hlakka til að sjá sem flesta fyrir jólin – svo „Siggi fái síðar buxur og Solla bláan kjól“. Höfundur er verkefnastjóri Fatasöfnunar Rauða krossins.
Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar