Gríðarleg velta á skuldabréfum slær ýmis met í maí 28. maí 2008 16:49
Gríðarleg velta hefur verið á skuldabréfamarkaði það sem af er ári og hafa ýmis met fallið í maí. Í fyrsta lagi er veltan í maímánuði orðin sú mesta í sögunni en hún er komin yfir 684 milljarða kr.. Greining Kaupþings fjallar um málið í Hálf fimm fréttum sínum. Þar segir að enn eru tveir viðskiptadagar eftir í mánuðinum, ef fram heldur sem horfir fer hún hæglega yfir 700 milljarða kr. Áður hafði hún orðið hæst í einum mánuði í janúar s.l. þegar veltan nam tæpum 683 milljörðum króna. Til að setja þessar tölur í samhengi við aðrar stærðir á íslenskum fjármálamarkaði þá hefur heildarvelta með hlutabréf mest orðið 528 milljarðar (júlí 2007) í einum og sama mánuðinum. Þá er, í öðru lagi, heildarvelta skuldabréfa komin í 2.851 milljarð króna það sem af er ári sem er um 17% aukning miðað við allt árið 2007 - sem þó var veltumesta árið hingað til á innlendum skuldabréfamarkaði. Ef aðeins er horft til sama tímabils í fyrra hefur velta á skuldabréfamarkaði fjórfaldast á milli ára. Margþættar skýringar eru fyrir líflegum viðskiptum með skuldabréf: Þar má nefna að aukin verðbólga og áhættufælni hafa aukið ásókn fjárfesta í verðtryggða ríkispappíra. Einnig má nefna að erlendir fjárfestar hafa komið af miklu afli inn í óverðtryggð ríkisbréf.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira