Vanskil útlána að aukast í fyrsta sinn síðan 2002 28. maí 2008 11:13
Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok mars 2008 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Sýna tölurnar að vanskilin eru að aukast í fyrsta sinn frá árinu 2002. Yfirlitið sýnir að hlutfall vanskila af útlánum í lok 1. ársfjórðungs í ár er 0,5% samanborið við 0,4% í árslok 2007. Í lok fyrsta ársfjórðungs 2007 var hlutfallið 0,6%. Vanskilin eru samkvæmt framansögðu að aukast á ný eftir nær samfellda lækkun frá seinni hluta árs 2002. Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum misserum kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd eru á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga. Vanskilahlutfall fyrirtækja er 0,5% í lok 1. ársfjórðungs í ár samanborið við rúmlega 0,3% í árslok 2007. Í lok 1. ársfjórðungs 2007 var hlutfallið 0,6%. Vanskilahlutfall fyrirtækja miðað við eins árs tímatöf er 0,9% samanborið við 0,5% í árslok 2007. Vanskilahlutfall einstaklinga er tæplega 0,8% í lok 1. ársfjórðungs 2008 samanborið við 0,7% í árslok 2007. Í lok 1. ársfjórðungs 2007 var hlutfallið rúmlega 0,8%. „Vanskil útlána hjá innlánsstofnunum í lok fyrsta ársfjórðungs 2008 eru byrjuð að vaxa á ný eftir nær samfellda lækkun frá árinu 2002. Vanskilahlutföllin eru þó enn svipuð og þau voru á árunum 2006 og 2007." Segir Ragnar Hafliðason hjá Fjármálaeftirlitinu.
Mest lesið Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Viðskipti erlent Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ Viðskipti erlent Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Viðskipti innlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Viðskipti innlent Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Viðskipti innlent Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Leggur til þrjár aðgerðir á ögurstundu fjölmiðla Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Bein útsending: Orkan, álið og kísillinn Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Nefndarmaður hefði kosið að halda stýrivöxtunum óbreyttum Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Stefnir í að eitt minkabú verði eftir á landinu Ráðin nýr markaðsstjóri Nettó og Kjörbúðanna Félögin þeirra högnuðust mest Útspilið hafi komið á óvart og hætta sé á minni uppbyggingu „Mikilvægt að skrifa ekki undir neitt nema vita hvað það er“ Margrét hættir hjá RÚV um áramótin Herða lánþegaskilyrði: „Við víkjum ekki frá þeim markmiðum“ 55 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankinn breytir reglum um greiðslubyrðarhlutfall Þorvaldur tekur við af Kristjáni hjá Samherja Sjá meira