Geir Haarde talaði markaðinn upp í góða stöðu Friðrik Indriðason skrifar 2. apríl 2008 13:27
Allt bendir til að Geir Haarde forsætisráðherra hafi tekist að styrkja gengi krónunnar og tala hlutabréfamarkaðinn upp í góða stöðu í dag. Frá því að viðtal við hann birtist í Financial Times í morgun hefur gengi krónunnar styrkst um rúm 3 prósent og úrvalsvísitalan hefur hækkað um 4 prósent. Samhliða þessu hefur skuldatryggingarálagið hjá stóru bönkunum þremur sem og hjá ríkissjóði lækkað um á bilinu 50 til 125 punkta frá því sem það var í upphafi vikunnar. „Þetta sýnir að orðin ein geta haft góð áhrif á markaðinn og ég tel það jákvætt sem forsætisráðherra lét frá sér fara í morgun," segir Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Glitnis, í samtali við Vísi. Eins og fram hefur komið í fréttum hótaði Geir því í viðtalinu við Financial Times að grípa til beinna aðgerða gegn vogunarsjóðum ef þeir ætluðu sér áfram að reyna að græða á því að veikja gengið og hlutabréfamarkaðinn með ósanngjörnum og jafnvel ólöglegum aðgerðum. Hann vildi þó ekki greina frá til hvaða aðgerða yrði gripið. Ingólfur Bender segir að yfirlýsingar eins og þær sem Geir gaf geti valdið því að undið sé ofan af þeim stöðum sem teknar eru til skamms tíma á markaðinum. Einnig og ekki síður geti þetta verið víti til varnaðar þeim sem ætla sér að leika saman leikinn aftur. Hvað sjálfar aðgerðirnar varðar nefnir Ingólfur sem dæmi að ríkissjóður geti gripið inn í markaðinn. Til dæmis á þann hátt að gjaldeyrisvaraforði landsins sé notaður til að spila á móti skortstöðum vogunarsjóða þannig að þeir fari með tapi út úr þeim stöðum.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira