Frumvarpið færir RÚV auknar tekjur 14. desember 2008 09:00 Pétur Pétursson skrifar um RÚV og fjölmiðlamarkaðFrumvarp menntamálaráðherra sem takmarkar umsvif RÚV á auglýsingamarkaði miðar að því að gera starfsemi stofnunarinnar gagnsærri og bæta samkeppnisumhverfi fjölmiðla. Hér er stigið jákvætt skref, en frumvarpið þyrfti að styrkja með ákveðnum áherslubreytingum. Þótt forsvarsmenn RÚV haldi því fram að frumvarpið verði til að skerða auglýsingatekjur Sjónvarpsins um 350 til 400 m.kr. má með sterkum rökum halda því fram að það feli í sér sóknarfæri fyrir félagið og geti aukið tekjur þess um 600 m.kr. Eina sem ráðamenn RÚV þurfa að gera er að fylgja eigin verðskrá og veita afslætti í samræmi við eigin afsláttarskrá. Það hafa þeir ekki gert til þessa heldur stundað undirboð skv. nýlegu áliti Samkeppniseftirlitsins. Verðskrá RÚV er birt á vef félagsins. Sömu sögu er að segja um reglur um afslætti stofnunarinnar. Í frumvarpinu er hins vegar að finna útfærslu á lengd auglýsingatíma á hverri klukkustund. Því eru allar forsendur fyrir hendi til að reikna út tekjumöguleika RÚV samkvæmt nýja frumvarpinu. Samkvæmt mínum útreikningum getur félagið aflað sér um 740 m.kr. með auglýsingasölu á kjörtíma (frá 19 til 22) og geri ég þá einungis ráð fyrir þokkalegum árangri söludeildar RÚV við að fylla þá auglýsingatíma sem þeir hafa til ráðstöfunar á kjörtíma. Utan kjörtíma geta tekjurnar numið milli 500 og 600 m.kr. Þar geri ég í mínum útreikningum ráð fyrir almennt slakri nýtingu þeirra auglýsingatíma sem eru til ráðstöfunar. Ég hvet menntamálaráðherra og þingmenn til að skoða tekjumöguleika RÚV skv. frumvarpinu og gildandi reglum. Geri þeir það sannfærast þeir vafalítið um að allt tal um að frumvarpið verði til að skerða stórlega tekjur stofnunarinnar á ekki við. Þverpólitísk nefnd skipuð af menntamálaráðherra hefur unnið gott starf og frumvarp menntamálaráðherra byggir á störfum hennar. Forsenda skipunar nefndarinnar er erfið staða einkarekinna fjölmiðla sem treysta á auglýsingatekjur í rekstri sínum og undirboð RÚV á auglýsingamarkaði. Niðurstaðan verður því að vera sú að bæta stöðu einkareknu fjölmiðlanna og að umsvif RÚV á auglýsingamarkaði verði reistar raunverulegar skorður. Stofnunin fær líka 3ja milljarða króna meðgjöf frá ríkinu á ári hverju og 3,6 milljarða skv. núverandi áformum. Hætta er hins vegar á því að í núverandi mynd hjálpi frumvarpið einkareknum fjölmiðlum minna en að var stefnt. Þá gæti blasað við ástand sem Samkeppniseftirlitið lýsir svo vel í fyrrnefndu áliti sínu: „Samkeppniseftirlitð telur að þátttaka RÚV á auglýsingamarkaði í sjónvarpi sé veigamikil ástæða þess að ekki eru fleiri öflugar sjónvarpsstöðvar hér á landi en raun ber vitni og eignarhald þeirra ekki dreifðara. ... Ef einkareknar sjónvarpsstöðvar geta ekki lengur keppt við RÚV og hætta sjónvarpsrekstri dregur það úr fjölbreyttni í fjölmiðlum og skaðar augljóslega lýðræðislega umræðu." Sama hætta blasir við í útvarpsrekstri. Samkeppniseftirlitið bendir á í sömu skýrslu að sölustarf RÚV í útvarpi sé gróðrarstía ógagnsæis og óheilbrigðra viðskiptahátta hjá ríkisstofnun. Það er því mat Samkeppniseftirlitsins að það sé algjörlega nauðsynlegt að í nýjum reglum um RÚV verði kveðið skýrt á um bann við kostun, vöruinnsetningu og slíku í öllu sölustarfi RÚV ohf. - hljóðvarpi líka. Það er vissulega ánægjulegt að frumvarpið sé komið fram. Sér í lagi að ákvæði um takmarkanir auglýsinga verði tekið til endurskoðunar fyrir 1. júlí 2009. Ég geri líka ráð fyrir að endurskoðun fari fram ef í ljós kemur að þær takmarkanir sem stefnt er að því að setja reynast ekki styðja við tilgang frumvarpsins um að bæta samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði. Slíkt væri til að draga enn frekar úr fjölbreytni í fjölmiðlum og skaða lýðræðislega umræðu. Höfundur er framkvæmdastjóri sölusviðs 365 miðla ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun