Gitnir lokar að mestu leyti í Danmörku 28. febrúar 2008 22:50 Þorsteinn Már Baldvinsson tók nýverið við sem stjórnarformaður Glitnis.
Glitnir hefur ákveðið að loka skrifstofu sinni í Kaupmannahöfn og flytja stærstan hluta núverandi starfsemi sinnar í Danmörku til London og í höfuðstöðvar bankans á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að breytingin sé liður í því að skerpa áherslur bankans í Evrópu og ná fram aukinni kostnaðarsamlegð og hagræði í starfsemi bankans. Skrifstofa Glitnis í London leiðir starfsemi bankans í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Bent er á að 17 manns starfi á skrifstofu bankans í Danmörku en starfsemin snýr að mestu að alþjóðlegum umsvifum bankans. Sú starfsemi flyst nú til London og Íslands og mun bankinn þjóna dönskum viðskiptavinum sínum þaðan. Ekki kemur fram hvort starfsmönnunum verði sagt upp. ,,Í núverandi markaðsástandi leggur bankinn áherslu á þá meginstefnu að byggja frekar upp bankastarfsemi sína í Noregi og að bjóða upp á tengda fjármálaþjónustu á Norðurlöndunum. Ennfremur mun bankinn auka áherslu á þjónustu við alþjóðlega kjarnaviðskiptavini, sérstaklega innan markaðssyllna bankans, sjávarafurða og jarðvarma, en Glitnir hefur leiðandi stöðu á þeim sviðum í krafti reynslu sinnar og sérþekkingar," segir í tilkynningunni. Starfsemi Nordic Total Capital teymis bankans, sem sérhæfir sig í samþættri yfirtökufjármögnun á starfar þó áfram í Danmörku sem sjálfstæð starfseining. Ljóst er að forsvarsmenn Glitnis ætla að standa við stóru orðin um aðhaldsaðgerðir á næstunni en stjórnarformaður bankans, Þorsteinn Már Baldvinsson, sagði í hádegisviðtali Markaðarins á dögunum að skorið yrði niður þar sem því yrði við komið. Stjórnendur bankans hafa þegar gengið á undan með góðu fordæmi með því að lækka laun sín.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira