Virkjum fiskimiðin 24. júlí 2008 00:00 Í Fréttablaðinu 17. júlí sl. var sagt frá því að skipa ætti nefnd, sem skila á af sér á kjörtímabilinu, til þess að kanna áhrif kvótakerfisins á landsbyggðina, þrátt fyrir að fyrir liggi skýrsla um málið frá 2001, og allir nema ráðamenn geri sér grein fyrir að kerfið hafi nú þegar lagt mörg sjávarpláss í rúst. Neikvæð áhrif kvótakerfisins á landsbyggðina hafa verið öllum ljós, nema sægreifum og ráðamönnum. Ég átti erindi á Breiðdalsvík um daginn, þar voru fáir á ferli nema ferðamenn að fylla á bifreiðar sínar - úr sjálfsala. Tvær trillur voru við bryggju en enginn var á ferli við höfnina. Enginn bátur sást á hafinu svo langt sem augað eygði. Þaðan ók ég norður um til Egilsstaða, yfir Hellisheiði eystri og norður fyrir Sléttu til Akureyrar. Ofan af Hellisheiði eystri var engan bát að sjá til hafs á Héraðsflóa og engan heldur á Vopnafirði. Í kauptúninu var lítið um að vera og ekkert líf við höfnina. Á Bakkaflóa sáust 2 trillur undan Langanesi. Á Þórshöfn var sama sagan, örfáir bátar við bryggju en ekkert fólk að vinna, enginn fiskur og enginn bátur sást á sjó á Þistilfirði. Af veginum við Súlur sunnan Raufarhafnar sást enginn bátur á sjó. Raufarhöfn er varla skugginn af sjálfri sér, örfáar trillur en enginn virtist vera í veiðiskap og engin sála var við höfnina. Þarna sá ég Kúbueinkennin, sem ég kalla svo: Húsum ekki haldið við, þau ekki máluð en látin grotna niður. Ein búð, opin fáa tíma á dag, engin dagblöð um helgar og eldsneyti aðeins úr sjálfsala. Þegar ekið var fyrir Melrakkasléttu var heldur engan bát að sjá, ekki heldur í Öxarfirði og á Kópaskeri voru fáir bátar við bryggju og enginn umgangur. Annað sem einkenndi þessi sjávarþorp var að þar var nær engan fugl að sjá, örfáa hettumáva og fáeinar kríur, það var allt. Þetta var öðruvísi meðan menn stunduðu sjó á Íslandi, þá iðuðu allar hafnir af fugli, sem var að fá sér í gogginn. Út af Tjörnesi var engan bát að sjá, það var ekki fyrr en kom að Húsavík að einn hvalaskoðunarbátur sást á leið í land með ferðamenn. Talsvert var af trillum í höfninni en lítið um að vera, flestar í biðstöðu vegna kvótaleysis. Í öllu krepputalinu núna leggja menn til að taka erlent lán til að auka gjaldeyrisforðann. Engum virðist detta í hug að fara í sjóinn og sækja gullið þaðan. Þjóðinni er haldið í kreppu vegna þess að Hafró heldur því fram að það þurfi að „byggja upp þorskstofninn" með friðun, helst veiða ekki neitt. Ráðamenn gleypa ráðleggingarnar hráar þótt löngu hafi verið sýnt fram á að þetta sé líffræðilega ómögulegt. Vitnar þar best um 30 ára árangursleysi þessarar „tilraunar". Það er á færi sjávarútvegsráðherra að bregða töfrasprota yfir sjávarþorpin og landið allt með því að auka aflaheimildir, stokka allt kerfið upp - og reka þjálfarann. Fyrir hverja er annars verið að reyna að byggja upp fiskstofnana? Það verða brátt engir eftir til þess að veiða. Höfundur er fiskifræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun