Glitnir gerir ráð fyrir 12,4 prósenta verðbólgu í júní 10. júní 2008 11:42 Ingólfur Bender er forstöðumaður greiningardeildar Glitnis.
Greiningardeild Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent á milli maí og júní og að verðbólga muni aukast lítillega, úr 12,3 prósentum í 12,4.Það er eilítið meira en fyrri spá bankans gerði ráð fyrir. „Ástæða þess að við spáum nú meiri verbólgu orsakast fyrst og fremst af því að gengi krónunnar hefur gefið eftir á ný sem mun koma fram í verðhækkun vöru með lítinn veltuhraða eins og eldsneyti. Dreggjar verðhækkunar vegna gengislækkunar fyrr á árinu eru enn að dreitla inn í verð innfluttrar vöru en stærsta gusan kom fram í apríl mælingu VNV. Verðhækkun eldsneytis hefur haldið áfram erlendis og áhrif þess verða nokkur í júní. Innlendur kostnaðarþrýstingur er einnig enn til staðar en við reiknum með að það muni draga úr honum þegar líður á árið," segir í Morgunkorni Glitnis.Greiningardeildin gerir ráð fyrir nokkuð hratt dragi úr árshraða verðbólgu frá og með haustinu og að hún verði nálægt 8,5 prósentum í árslok. Enn fremur að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans náist um mitt næsta sumar og verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans á seinni hluta næsta árs.„Forsendur þess að þetta gangi eftir eru fyrst og fremst þær að gengi krónunnar taki að hækka á ný í sumar og að krónan styrkist hægt og bítandi út spátímabilið. Óvissan í þeim efnum er þó í þá átt að það taki erlenda markaði lengri tíma að ná jafnvægi með aðgengi að erlendum lánamörkuðum á nýjan leik, en það er mikilvæg forsenda þess að krónan taki að hressast aftur. Jafnframt skiptir ró á vinnumarkaði miklu. Verði farið af stað með nýjar og meiri launakröfur en þegar hefur verð samið um eykst hættan á víxlverkun launa, verðbólgu og gengis en slíkt myndi óhjákvæmilega hafa aukna verðbólgu í för með sér," segir greiningardeildin.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Sjá meira