Löng bið verður í tvöföldun á gjaldeyrisvarasjóðnum 16. apríl 2008 11:07
Greining Glitnis telur að menn þurfi að bíða mánuðum saman eftir því að Seðlabankinn tvöfaldi gjaldeyrisvarasjóð sinn eins og til stendur. Og raumar megi leiða líkum að því að þegar Davíð Oddsson tekur loks af skarið muni þörfin fyrir þessa aukningu hafa minnkað að mun. Greining fjallar um málið í Morgunkorni sínu þar segir að Seðlabankinn og stjórnvöld liggja nú undir ágjöf úr mörgum áttum fyrir aðgerðaleysi gagnvart þeim erfiðu aðstæðum sem hafa skapast á fjármálamörkuðum. Frá því að forsætisráðherra gaf til kynna að til stæði að allt að tvöfalda gjaldeyrisforðann til að bregða frekari stoðum undir fjármálakerfið undir lok síðasta mánaðar hafa markaðir verið í biðstöðu. Biðin eftir víðtækari aðgerðum gæti orðið lengri en í fyrstu var gefið til kynna. Á fréttamannafundi sem haldinn var í kjölfar vaxtaákvörðunar í síðustu viku tók Davíð Oddsson Seðlabankastjóri undir að eðlilegt væri að stækka gjaldeyrisforðann um allt að helming en sagði einnig að slíkar aðgerðir væru skilyrtar því að hagstæðari skilyrði myndu skapast á alþjóðlegum lánamörkuðum. „Ljóst er að sá tími sem gæti liðið þar til skilyrðin verða hagstæðari gæti verið mældur í mánuðum en ekki vikum. Raunar helst í hendur að þegar kemur að því að kjör batna verulega á lánsfjörmörkuðum mun þörfin fyrir stórtækar aðgerðir Seðlabanka hafa minnkað, þar sem slíkur bati lánskjara á sér varla stað fyrr en alþjóðlega lánsfjárkreppan gengur niður," segir í Morgunkorni Glitnis. Þrátt fyrir að markaðir, lánshæfismatsfyrirtækin og fleiri aðilar bíði nú aðgerða frá Seðlabankanum og stjórnvöldum og horfi helst til aukningar gjaldeyrisforðans í því sambandi má ekki gleyma þeim aðgerðum sem Seðlabankinn hefur nú þegar lagt upp með.Auk þess að gefa út sérstök innstæðubréf fyrir samtals 43,6 milljarða kr. hefur Seðlabankinn rýmkað reglur um aðgang fjármálafyrirtækja að lánsfé í bankanum, meðal annars með því að afnema bindiskyldu fyrir erlendan rekstur íslensku viðskiptabankanna.Þessar aðgerðir eru allar jákvæðar og í takti við það sem seðlabankar víða um heim hafa gert til að bregðast við fjármálakreppunni sem nú skekur alþjóðamarkaði.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira