Viðskipti innlent

Fall XL Leisure vekur athygli á umsvifum Íslendinga

Bræðurnir Lýður og Ágústs Guðmundssynir í Bakkavör eru í hópi þeirra Íslendinga sem hafa fjárfest í Bretlandi undanfarin ár.
Bræðurnir Lýður og Ágústs Guðmundssynir í Bakkavör eru í hópi þeirra Íslendinga sem hafa fjárfest í Bretlandi undanfarin ár.

Gjaldþrot bresku ferðaskrifstofunnar XL Leisure Group í gærmorgun beinir athygli breskra fjölmiðla að umsvifum íslenskra kaupsýslumanna í landinu en ferðaskrifstofan var að hluta til í eigu Íslendinga.

Í netútgáfu Telegraph í dag eru meðal annars rifjuð upp kaup Landsbankans á verðbréfafyrirtækjunum Teather & Greenwood og Bridgewell, Kaupþings á fjárfestingarbankanum Singer & Friedlander Group fyrir þremur árum og kaup bræðranna í Bakkavör á matvörukeðjunni Geest.

Þá er sagt frá því umsvifum Baugur Group sem á fyrirtækin Karen Millen, Oasis, Principles, Warehouse, Whistles, Jane Norman, Matthew Williamson, House of Fraser, Hamleys, Goldsmiths og Iceland. Rifjað er upp að forystumenn fyrirtæksins íhugi að flytja höfuðstöðvar þess til Bretlands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×