Algjört andleysi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2008 21:25 Sigurður Sveinsson er einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. „
Mér fannst eins og að leikurinn væri tapaður frá fyrstu mínútu. Það var engin stemning og engin barátta og strákarnir höfðu greinilega enga trú á verkefninu,“ sagði Sigurður Sveinsson, einn sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. Ísland tapaði í dag fyrir Frökkum, 30-21, og átti aldrei glætu í leiknum. „Mér fannst áberandi hvað sóknarleikurinn var slakur. Hann var rosalega tilviljunarkenndur og markverðirnir voru með okkur hreinlega í vasanum." „Ef við ætlum okkur að komast eitthvað áfram í þessu móti verða þeir Einar, Ásgeir, Logi og sérstaklega Snorri Steinn að koma sér í gang. Snorri verður að stjórna sóknarleiknum og fá meiri hraða í hann." „Miðað við leikinn gegn Slóvökum var þetta eins og svart og hvítt. Í gær spiluðum við hraðan og fínan bolta en þetta var bara göngubolti í dag." Hann segir að Frakkar hafi mætt gríðarlega vel stemmdir til leiks í dag. Þeir hafi greinilega ætlað sér að hefna ófaranna frá HM í fyrra. „Þeir pökkuðu okkur saman á fyrstu 20 mínútunum. Við áttum ekki séns í vörnina þeirra og fyrir aftan hana var Omeyer mjög góður." Framundan er milliriðillinn þar sem Þýskaland, Spánn og Ungverjaland bíða okkar. Öll þessi lið koma með tvö stig með sér úr C-riðli en Ísland hefur leik án stiga í milliriðlakeppninni. „Þetta er ekki búið. Við þurfum bara að byrja að spila almennilega. Við þurfum að koma okkur upp úr fyrsta gírnum og tel ég að sóknin hafi ekki verið að spila á nema 50 prósent getu. Við eigum fullt inni." Líklegt þykir að Ólafur Stefánsson verði orðinn leikfær fyrir leikina í milliriðlinum. „Það hefur vantað Óla með sín 5-6 mörk og stoðsendingar. Þeir eru greinilega ekki að valda þessu án hans."
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira