Klaufalegt tap Íslands í Noregi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2008 17:33 Einar Hólmgeirsson skoraði sjö mörk fyrir íslenska liðið. Mynd/Vilhelm
Ísland tapaði afar klaufalega fyrir Ungverjalandi á Posten Cup-mótinu í Noregi. Ungverjar skoruðu síðustu fimm mörk leiksins og unnu, 28-27. Einar Hólmgeirsson var markahæstur með sjö mörk í leiknum. Upplýsingarum markaskorara eru neðst í greininni. Staðan í hálfleik var 15-13 fyrir Ungverja eftir að Ísland hafði leitt um miðbik hálfleiksins, 10-8. Jafnræði var áfram með liðunum í síðari hálfleik og var staðan jöfn, 20-20, þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka. Andri Stefan kom svo íslenska liðinu yfir, 21-20, með góðu marki og náði þar með frumkvæðinu fyrir Ísland. Þegar um tíu mínútur voru eftir hófst frábær leikkafli hjá íslenska liðinu. Vörnin stóð vaktina afar vel og Birkir Ívar Guðmundsson varði nokkur mikilvæg skot í markinu. Á þessum leikkafla náði Ísland mest fjögurra marka forystu, 27-23, með tveimur mörkum í röð frá Einari Hólmgeirssyni. Þá komu hins vegar fjögur ungversk mörk í röð og voru þau í ódýrari kantinum. Kristján Halldórsson tók þá leikhlé er rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. Hannes Jón Jónsson átti skot í slána þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum og gat þar með ungverska liðið endurheimt forystuna. Íslendingar fengu þá hraðaupphlaup eftir mistök í sóknarleik Ungverja en Baldvin Þorsteinsson lét verja frá sér í opnu færi. Ungverjar fengu því aftur boltann og voru nú 40 sekúndur til leiksloka. Þeir skoruðu og voru því með pálmann í höndunum. Einar Hólmgeirsson átti síðasta skot leiksins en skotið missti marks. Ungverjar skoruðu því síðustu fimm mörk leiksins og tryggðu sér þar með eins marks sigur. Sigfús Sigurðsson lék í vörn íslenska liðsins og Einar lék einnig lengst af með liðinu. Báða skortir leikreynslu þar sem þeir hafa lítið leikið með sínum félagsliðum í haust. Mörk Íslands: Einar Hólmgeirsson 7 Hannes Jón Jónsson 5 Sturla Ásgeirsson 3 Arnór Atlason 3 Kári Kristján Kristjánsson 2 Andri Stefan 2 Baldvin Þorsteinsson 2 Heimir Örn Árnason 2 Jóhann Gunnar Einarsson 1
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Sjá meira