Hagnaður SPRON 3,3 milljarðar eftir skatta 6. febrúar 2008 19:57
SPRON hagnaðist um 3,3 milljarða eftir skatta árið 2007 en þetta kemur fram í uppgjöri fyrirtækisins sem birt var í dag. Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON segir afkomuna vera vel viðundandi í ljósi mikilla lækkana á hlutabréfamörkuðum. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 11,5 prósent á árinu og hrenar rekstrartekjur námu 9,2 milljörðum króna. Afkoma grunnrekstrar var 4,9 milljarðar króna með 17,1% arðsemi eigin fjár fyrir skatta og innlán voru 53 prósent af heildarútlánum SPRON til viðskiptamanna. Þá kemur fram að innlánaaukning frá 2006 hafi numið 51 prósenti.Niðurstaða efnahagsreiknings var 224,2 milljarðar króna í lok árs 2007 og hafa heildareignir hækkað um 22% frá 2006. Þá námu heildarútlán til viðskiptamanna SPRON 161,6 milljörðum króna í lok árs og hækkuðu um 26% frá árinu 2006.Eigið fé SPRON í lok árs nam 27,8 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall (CAD) samstæðunnar í lok tímabilsins var 13,4%.Í uppgjörinu kemur einnig fram að lausafjárstaða sé sterk, engin stærri lán séu á gjalddaga fram til september 2009.,,Grunnrekstur SPRON hefur styrkst á árinu og fara vaxta- og þóknanatekjur hækkandi," segir Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON. „Innlán hafa aukist um 51% og fjármagna bæði SPRON sparisjóður og Netbankinn sig alfarið með innlánum en fyrir samstæðuna í heild nema innlán 53% af heildarútlánum til viðskiptavina. Lausafjárstaða félagsins er sterk og aðeins eitt langtímalán er á gjalddaga árið 2008 fyrir um 20 milljónir evra sem hefur þegar verið fjármagnað."Guðmundur segir að lækkun á verðmæti Exista hafi óveruleg áhrif á eiginfjárgrunn samstæðunnar. „Á árinu 2008 er ætlunin að vinna að frekari samþættingu í kjölfar þess vaxtar sem einkennt hefur reksturinn undanfarin ár. Um leið er ætlunin að draga úr kostnaði og hagræða í rekstri. Við erum því mjög vel í stakk búin til þess að mæta þeim erfiðu aðstæðum sem nú eru uppi á fjármálamörkuðum og nýta þau tækifæri sem munu skapast," segir Guðmundur Hauksson.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira