Arðgreiðslur minnka um helming í Kauphöllinni 15. apríl 2008 17:04
Heildararðgreiðslur þeirra fyrirtækja, sem nú mynda Úrvalsvísitöluna og á annað borð greiða almennt arð, dragast saman um rúman helming á milli ára að því er fram kemur í Hálffimmfréttum Kaupþings. „Sambærilegur samdráttur var á hagnaði þessara félaga milli ára. Hvorki FL Group né Exista greiða út arð fyrir rekstrarárið 2007 en í fyrra greiddu þessu félög samanlagðan arð upp á tæpa 26 milljarða króna. Þá ætlar Landsbankinn ekki að greiða út arð í ár nema óbeint en fyrir aðalfundi bankans liggur fyrir tillaga að lækka hlutafé bankans um 300 milljónir þannig að eigin bréf bankans, að sömu fjárhæð, verði felld niður. Þá er einnig lagt til að gefa út jöfnunarhlutabréf í bankanum að nafnverði 300 milljóna króna. Þessa aðgerð má því að vissu leyti túlka sem arðgreiðslu til hluthafa," segir í Hálffimmfréttum. Kaupþingsmenn benda einnig á að þrátt fyrir að hagnaður Kaupþings, Straums og Bakkavarar hafi dregist saman á milli ára „greiða þessi félög hærri arð í ár en í fyrra sem hlutfall af heildarhagnaði. Kaupþing greiddi 21% af hagnaði félagsins 2007 í arð samanborið við 12% í fyrra en hjá Bakkavör var samsvarandi hlutfall 20% nú en 11% í fyrra. Hjá Straumi hækkar hlutfallið í 30% nú í stað 17% áður. Aðeins tvö fyrirtæki greiða hærri arð nú en í fyrra en þau eru Bakkavör og Kaupþing. Þess má geta að SPRON, sem er ekki meðal félaga í Úrvalsvísitölunni, greiddi út allan rekstrarhagnað ársins 2006 í formi arðs en félagið var þá ekki skráð á hlutabréfamarkað." „Í ár er algengara að hluthöfum bjóðist að taka hluta arðsins, jafnvel allan, út í bréfum viðkomandi félags," segir einnig. „Til að mynda gafst hluthöfum Glitnis kostur á að fá allt að helmingi arðs síns greiddan í formi hlutafjár í bankanum. Hluthafar SPRON gátu fengið sinn arð að hluta eða öllu leyti greiddan í formi hlutabréfa og þá fengu hluthafar í Atorku Group arð annars vegar í formi hlutabréfa og hins vegar í peningum. Arðgreiðsla Straums verður að öllu leyti greidd með hlutabréfum í félaginu. Almennt virðast því fyrirtæki tregari til að greiða arð í formi lauss fjár en ella í núverandi lausafjárkreppu."
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira