Seðlabankinn: Harmagedón 2010 11. apríl 2008 13:06 Davíð sýnir hvar hann keypti ölið.
Þegar rýnt er í nýjasta hefti Peningamála Seðlabankans kennir ýmissa grasa. Samkvæmt þessari ársfjórðungslegu opinberunarbók bankans má nánast draga þá ályktun að Ísland verði sviðin jörð árið 2010. Í Opinberunarbók Jóhannesar (16:1 - 17) segir frá því er englarnir sjö helltu úr hinum sjö skálum reiði guðs yfir jörðina. Vísir birtir hér úttekt sína á hinum sjö skálum Seðlabanka Íslands. Og hinn fyrsti fór og hellti úr sinni skál á jörðina. Og vond og illkynjuð kaun komu á mennina. Þrjátíu prósenta lækkun íbúðaverðs árið 2010. Og hinn annar hellti úr sinni skál í hafið, og það varð að blóði eins og blóð úr dauðum manni. Halli hins opinbera verður um 8% af landsframleiðslu árið 2010. Og hinn þriðji hellti úr sinni skál í fljótin og uppsprettur vatnanna og það varð að blóði. Verðbólga á þriðja ársfjórðungi 2008 verður tæp 11%. Og hinn fjórði hellti úr sinni skál yfir sólina. Og sólinni var gefið vald til að brenna mennina í eldi. Samdráttur vergrar landsframleiðslu verður 2,5% á næsta ári og 1,5% árið 2010. Og hinn fimmti hellti úr sinni skál yfir hásæti dýrsins. Og ríki þess myrkvaðist, og menn bitu í tungur sínar af kvöl. Einkaneysla verður 13% minni en í fyrra árið 2010. Og hinn sjötti hellti úr sinni skál yfir fljótið mikla, Efrat. Og vatnið í því þornaði upp. Atvinnuleysi verður rúm 4% árið 2010. Og hinn sjöundi hellti úr sinni skál yfir loftið og raust mikil kom út úr musterinu, frá hásætinu og sagði: „Það er fram komið." Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, 2,5%, næst á þriðja fjórðungi ársins 2010. Opinberunarbókinni lýkur á þessum orðum: „Ég votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau, mun Guð á hann leggja þær plágur, sem um er ritað í þessari bók." Hvernig lýkur Peningamálum?
Mest lesið Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Sjá meira