Börsen hraunar enn og aftur yfir íslensk félög 8. maí 2008 09:27
Danska viðskiptablaðið Börsen fór mikinn í umfjöllun um íslensk félög og notaði tækifærið til að hrauna yfir þau á vefsíðu sinni í gær. Fyrirsögn blaðsins á frétt um afkomu Glitnis á fyrsta ársfjórðung var, Glimmerið fer af Glitni og fyrirsögn á frétt um Icelandair var, Lokkar ferðamenn til Íslands með gjaldfallinni krónu. Hvað afkomu Glitnis varðar er útgangspúnktur Börsen að hagnaður hafi minnkað um 11% frá sama tímabili í fyrra vegna aukinna útgjalda. Og síðan er sagt að Moody´s sjái dökkt skýjafar yfir íslensku bönkunum. Til samanburðar má nefna að bæði greining Kaupþings og greining Landsbankans töluðu um gott uppgjör hjá Glitni enda var hagnaður bankans töluvert yfir væntingum. Í frétt um Icelandair er sagt að félagið nýti sér nú "dramatískt" fall krónunnar til að auglýsa ódýrar ferðir til Íslands. "Krónan er veik - nóttin er björt" hljómi auglýsingatextinn í fréttabréfi félagsins og sé honum ætlað að lokka danska ferðamenn til landsins. Þriðja dæmið í Börsen er umfjöllun um að afskrá eigi FL Group af markaði en fyrirsögnin á þeirri frétt er "Íslenskur risi berst fyrir lífi sínu". Sagt er að félagið sé á leið af markaðinum svo það geti "sleikt milljarða sár sín í friði frá opinberu eftirliti".
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Sjá meira