Birkir Hólm Guðnason tekur við Icelandair 8. maí 2008 09:21 Birkir Hólm Guðnason.
Birkir Hólm Guðnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair. Hann hefur starfað hjá félaginu um árabil, nú síðast sem svæðisstjóri þess á Norðurlöndum, með aðsetur í Kaupmannahöfn. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur að undanförnu einnig stýrt Icelandair, en lætur nú af því starfi og einbeitir sér að stjórnun Icelandair Group. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir krefjandi verkefni bíða nýs framkvæmdastjóra Icelandair. „Icelandair er eitt af stærstu fyrirtækjum á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Birkir er kröftugur stjórnandi sem gjörþekkir starfsemi Icelandair og hefur fjölþætta reynslu úr starfsemi félagsins hér á landi og erlendis. Ég treysti honum og samstarfsfólki hans hjá Icelandair til þess leiða fyrirtækið og þróa í takt við þær breytingar sem jafnan eru í umhverfi okkar. Nú eru blikur á lofti í alþjóðafluginu bæði vegna eldsneytisverðhækkana og eftirspurnar í tengslum við óvissu í efnahagsmálum og því þörf á að taka flugrekstur föstum tökum." Birkir segist hlakka til að taka til starfa. „Ég lít á það sem mikinn heiður að fá að leiða Icelandair. Ég hef starfað víða innan fyrirtækisins og veit að innan þess er margt frábært starfsfólk sem ég hlakka til að vinna með. Stóra verkefnið sem við blasir er að reka félagið með góðri arðsemi við þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja. Það er spennandi verkefni sem gaman verður að fást við með samstarfsfólki mínu." Birkir er 34 ára gamall, hann lauk BS og mastersnámi í viðskiptafræðum frá Álaborgarháskóla árið 2000 og hefur starfað hjá Icelandair síðan, Fyrst sem sölustjóri á Íslandi, þá sem sölustjóri í Norður-Ameríku, síðan svæðisstjóri í Mið-Evrípu með aðsetur í Frankfurt, og frá 2006 sem svæðisstjóri Icelandair á norðurlöndunum, með aðsetur í Kaupmannahöfn. Hann er í sambúð með Fríðu Dóru Steindórsdóttur flugfreyju og hjúkrunarnema og á þrjú börn.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira