Seðlabankinn segir fjármálakerfið vera í meginatriðum traust 8. maí 2008 16:24
Í tímariti Seðlabankans, Fjármálastöðugleiki, sem kom út í dag er endurtekið það álit greiningar bankans að fjármálakerfið sé í meginatriðum traust. Hinsvegar munu ríkjandi aðstæður reyna á viðnámsþrótt bankanna. Í ritinu segir m.a. að atburðarás sem hófst eftir mitt síðasta ár og afleiðingar hennar á alþjóðlegum fjármálamarkaði voru óvæntar. Áhættusækni vék fyrir áhættufælni og ekki sér fyrir endann á óvissu sem birtist m.a. í lausafjárþrengingum og áhyggjum af efnahagshorfum. Seðlabankinn gerði ekki ráð fyrir að veðrabrigðin yrðu svo skörp sem raun ber vitni. Í skýrslu bankans í fyrra var engu að síður varað við hættum sem framundan kynnu að vera. Bankarnir voru á margan hátt vel búnir undir að mæta lausafjárþrengingum og efnahagslegum áhrifum þeirra á starfssvæðum sínum. Að nokkru má rekja það til viðbragða þeirra við andstreyminu sem þeir mættu á fyrri hluta árs 2006 en sá vandi var ekki alþjóðlegur. Nú takast þeir á við lækkun eignaverðs, hækkun fjármagnskostnaðar og takmarkaðan aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum. Nauðsynlegt er þó að benda á áhættuþætti sem gætu reynst erfiðir viðfangs við þær aðstæður sem framundan kunna að vera. Á liðnu ári hækkaði hlutfall stórra áhættuskuldbindinga af eigin fé bankanna sem og hlutfall eignarhaldsfélaga í útlánum. Ástæða er til að gefa þeirri þróun gaum.Þá er enn töluvert um útlán með veði í hlutabréfum. Verðmæti veðanna hefur lækkað á síðustu misserum. Lítið hefur þó verið um þvingaðar sölur vegna veðkalla og tryggingarþekja bankanna er rúm samkvæmt upplýsingum Fjármálaeftirlitsins.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira