Fróðlegt að sjá Vigni og Ásgeir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. janúar 2008 14:08 Aron er þjálfari Hauka í N1-deild karla og fyrrum landsliðsmaður í handbolta. Mynd/Anton „
Ég held að aðalatriðið í leikjunum við Tékka er að við spilum góðan varnarleik. Það er nauðsynlegt að spila góða vörn til að ná árangri í Noregi," sagði Aron Kristjánsson, einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. Ísland mætir Tékkum klukkan 16.00 í dag og svo aftur annað kvöld en það eru síðustu leikir liðsins fyrir EM í Noregi sem hefst á fimmtudaginn. „Það verður sérstaklega fróðlegt að sjá hvernig miðsvæðið í vörninni verður. Sverre er búinn að vera mikið veikur og Sigfús er út í Noregi með B-landsliðinu. Það verður því forvitnilegt að sjá hvernig Vignir og Ásgeir koma inn í þetta hlutverk og hvernig það muni þróast," sagði Aron. En hann segir það einnig mikilvægt ef íslenska landsliðið vinni að minnsta kosti annan leikinn gegn Tékkum. „Við unnum enga leiki í Danmörku um síðustu helgi þar sem við vorum engu að síður að spila ágætlega. Þar fékk Alfreð líka tækifæri til að prófa ýmsa hluti en ég held að það sé mikilvægt að vinna leik til að efla sjálfstraustið fyrir mótið sjálft." Tékkar verða án síns sterkasta leikmanns, Filip Jicha, sem á við meiðsli að stríða. „Hann er yfirburðamaður í sóknarleiknum þeirra og fjarvera hans ætti að gera það að verkum að við eigum meiri möguleika í leiknum. En við eigum eftir að mæta sterkari þjóðum en Tékkum þegar í mótið er komið. Bæði erum við í erfiðum riðli og ef við komust áfram bíður okkar erfiður milliriðill." Arnór Atlason og Alexander Petersson hafa átt við meiðsli að stríða en sá síðarnefndi spilaði ekkert í æfingamóti í Danmörku um síðustu helgi. „Ég held að það væri mjög gott ef Alex myndi alla vega spila annan leikinn. Það sama má segja um Arnór en það var góður stígandi í hans leik í Danmörku. Það gefur manni von um að hann fari loksins að standa sig með lansliðinu eftir erfiðleikatímabil." Annar mikilvægur þáttur í leikjum Íslands og Tékklands að mati Arons er stuðningur áhorfenda. „Íslendingar þurfa að pakka vel í höllina og styðja vel við bakið á strákunum. Þegar út í slaginn er komið í Noregi verða væntanlega mikið af Svíum á pöllunum í fyrsta leiknum. Það verða því væntanlega mikil læti og því mikilvægt að strákarnir upplifi leikina gegn Tékkum sem alvöru leiki, ekki bara æfingaleiki."
Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Sonurinn skaut móður sína Sport Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Hræðist ekki sorgarsögu Íslendinga í Króatíu: „Við þurfum bara að skrifa betri sögu“ Fótbolti Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Fótbolti Mbappé sár eftir HM Fótbolti Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Zidane nýr landsliðsþjálfari Frakklands Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira