Kaldir vindar blása um Kaupþing í London 4. maí 2008 16:45
Breska blaðið The Guardian fjallar um Kaupþing og starfsemi bankans í London. Segir blaðið að kaldir vindar blási um Kaupþing þar þessa dagana og spurning hvort lánveitingar bankans til fasteignamógúla og litríkra fjárfesta sé of stór biti fyrir bankann að kyngja. Blaðið bendir á að meðal kúnna Kaupþings sé sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey sem hefur tekið lán hjá bankanum til að víkka út veitingahúsaveldi sitt, tískubúðaeigandinn Karen Miller, skoski milljarðamæringurinn Tom Hunter og fasteignamógúllinn Robert Tchenguiz. Þessi listi er áhrifamikill en síðan bendir The Guardian á að bankinn fjármagnaði Tchenguiz í kaupunum á Sommerfield upp á 1,5 milljarð punda árið 2005 og að sú eign sé nú til sölu. Bankinn var ráðgjafi Mike Ashley í kaupunum á fótboltaliðinu Newcastle og það sé til sölu. Bestu lántakendur bankans séu Candy-bræðurnir sem eru að byggja lúxusíbúðir í bestu hverfum London. Fasteignamarkaðurinn í Bretlandi sé hins vegar ekki í góðu standi þessa dagana. Og raunar getur blaðið þess að Kaupþing hafi verulega dregið úr lánum sínum til fasteigna en markaðurinn féll um 20 prósent á síðasta ári. Þar að auki kemur fram að greinendur dáist að þvi hve vel Kaupþingi hefur tekist að draga úr kostnaði sínum og ná markmiðum sem sett eru hvað það varðar. The Guardian segir að hér eftir muni Kaupþing einbeita sér að veita fjármálaþjónustu til smærri og meðalstórra fyrirtækja og einstaklinga með miklar eignir að baki sér. Því hafi starfsemi bankans í Leeds og Manchester verið flutt til London og Birmingham.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira