Viðskipti innlent

Vonast til að salan á Kaupþing Lux klárist fyrir jól

Vonast er til að sala á Kaupþingi í Lúxemburg klárist fyrir jól, samkvæmt heimildum Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Eins og greint var fyrst frá í fréttum Stöðvar 2 er verið að vinna að samningum um sölu á Kaupþingi í Luxemburg við líbýskan banka. Söluverðið er ein evra en málið er flókið vegna þess að samkvæmt samningnum verður kaupandanum gert skylt að tryggja innistæður sparifjáreigenda í bankanum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×