Höfuðborg í herkví Örn Sigurðsson skrifar 12. desember 2008 06:00 Vegna greinar Birnu Lárusdóttur 6.12. 2008 er bent á eftirfarandi: Flugvöllur í Vatnsmýri er aðalorsakavaldur þess að miðbær Reykjavíkur koðnaði niður, útþensla byggðar á höfuðborgarsvæðinu er stjórnlaus (135 km² svæði á við París og San Francisco), fæstir komast erinda sinna gangandi, grunnur nærþjónustu og Strætó hrundi, mestöll verslun er í „kringlum", þar er nú bílasamfélag án hliðstæðu. Einkaneysla bílasamfélagsins kemur þjóðinni illa í hruninu: sóun í bíla, ómarkvissar byggingar, lífsstílsbruðl og óskilvirkan rekstur heimila, fyrirtækja og sveitarfélaga. Birna Lárusdótti og aðrir landsbyggðarforkólfar bera þunga ábyrgð á stöðu höfuðborgarinnar. Þeir misnota illa fengin yfirráð samgönguráðherra yfir flugvelli í Vatnsmýri og misvægi atkvæða til að þrýsta á flokkssystkin í ráðhúsi Reykjavíkur til undanhalds í helstu hagsmunamálum borgarbúa, brotthvarfi flugvallar og betri stofnbrautum. Borgaryfirvöld bregðast kjósendum og láta undan þrýstingi í stað þess að efla borgina. Skipulagsvaldið er þó hjá borgarstjórn og henni ber að hafa hag borgarbúa að leiðarljósi. Reykjavík hefði þróast áfram sem „evrópsk" borg án flugvallar, líkt og fram að stríði og hefði þá m.a. hamlað fólksflótta á „mölina". Tjónið er mikið. Á 60 árum nemur það þúsundum milljarða í auknum stofn- og rekstrarkostnaði heimila, fyrirtækja og sveitarfélaga, í tímasóun, aksturskostnaði og heilsutapi í stækkandi borg. En ábati af byggð með 45 þúsund íbúum og störfum í Vatnsmýri er mikill: Stjórnlaus útþensla byggðar stöðvast, vítahringur bílasamfélagsins rofnar, akstur minnkar um 40% og borgin verður mannvæn og skilvirk. Og völlurinn er enn í Vatnsmýri. Hann gagnaðist aldrei dreifbýlinu í að sporna við fólksflótta enda er íbúafjöldi víða kominn niður fyrir þau mörk þjónustu, sem flestir vilja. Hann stuðlar hins vegar að fólksflótta því af hans völdum uxu þéttbýli, sem buðu upp á góða millilendingu fyrir nýaðflutta. Völlurinn líkist leikvangi en þjónar þó þörfum forkólfa, sem einatt fljúga og aka á annarra kostnað. Hann virðist hluti byggðarstefnunnar, oft nýttur til að sefja landsbyggðarbúa, sem eru enn án boðlegra vega af því að þingmenn þeirra fóru illa með vegafé. Völlurinn sameinar sveitarstjórnir í glímu við tilvistarangist og brottflutning vegna vondrar byggðastefnu, óvægins framsals kvóta og vítahrings fábreytni. Stofnbrautir, vegafé og flugvöllur eru á valdi samgönguráðherra, sem ræður því, sem máli skiptir um þróun borgarinnar. Og hann beitir valdinu ótæpilega gegn borgarbúum í þjónkun við ímyndaða hagsmuni, sem forkólfar móta í bakherbergjum og berjast fyrir með kjafti og klóm á landsfundum landsmálaflokka. Þar ráðast örlög þjóðar, oft með ólýðræðislegri hætti en orð fá lýst sbr. landsfundi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Í þessu ljósi eru skrif Birnu Lárusdóttur og annarra landsbyggðarforkólfa ekki verð þess að eltar séu við þau ólar. Þeim væri sæmst að stuðla að framtíðarlausn flugs á Suðvesturlandi. Höfundur er arkitekt og áhugamaður um lýðræði og skilvirka borg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko Skoðun Skoðun Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar