Segir afnám verðbólgumarkmiðs valda búsifjum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. maí 2008 10:21 Þórarinn G. Pétursson. MYND/Gunnar V. Andrésson
Í kjölfar ummæla Roberts Z. Aliber, hagfræðiprófessors frá Chicago, um að skynsamlegt sé fyrir Seðlabanka Íslands að setja verðbólgumarkmið sitt til hliðar í tvö ár á meðan þjóðin vinni sig út úr fjárhagslegum þrengingum, leitaði Vísir álits sérfræðinga Seðlabankans. „Í stuttu máli þá er grundvöllur þess að halda lítilli og stöðugri verðbólgu að peningastefnan veiti verðbólguvæntingum trausta kjölfestu," sagði Þórarinn Gunnar Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri og staðgengill aðalhagfræðings, en svar hans barst með tölvupósti. Þórarinn sagði seðlabanka um allan heim hafa leitað leiða til að ná þessu markmiði og hefði ýmislegt verið reynt í því sambandi, allt frá því að tengja gjaldmiðla við góðmálma, setja sér reglur um vöxt peningamagns eða festa gengi gjaldmiðilsins við gjaldmiðil lands sem hefur seðlabanka sem veitir þessa kjölfestu. Trúverðugleikanum varpað fyrir róða Á síðustu árum sagði Þórarinn æ fleiri ríki hafa farið þá leið að setja seðlabanka sínum tölulegt verðbólgumarkmið til að ná þessum stöðugleika. Þá ritaði Þórarinn: „Með afnámi verðbólgumarkmiðsins yrði trúverðugleiki baráttunnar við verðbólgu hér á landi endanlega fyrir bý og háar verðbólguvæntingar myndu festast í sessi. Afleiðing þess yrði að við myndum missa algerlega tökin á verðbólgunni sem gerði það enn erfiðara og kostnaðarsamara að ná henni niður síðar. Svigrúm peningastefnunnar til að mýkja áhrif mögulegra erfiðleika í efnahagslífinu síðar meir yrði því minna sem verðbólgan yrði hærri og sveiflukenndari." Að sögn Þórarins er það mikill misskilningur að afnám verðbólgumarkmiðs sé til þess fallið að lækka vexti. Nafnvextir séu því hærri sem verðbólga er meiri og nefnir Þórarinn millibankavexti í Zimbabve máli sínu til stuðnings en þeir séu nú rúmlega 4.000 prósent. Afnám verðbólgumarkmiðsins sé því til þess fallið að hækka langtímanafnvexti í stað þess að lækka þá. Þórarinn telur talsmenn afnáms verðbólgumarkmiðs ekki gera sér grein fyrir eðli skuldbindinga innlendra heimila og fyrirtækja en stór hluti þeirra sé verðtryggður eða bundinn í erlendum gjaldmiðlum. Klykkir hann út með því að „afnám verðbólgumarkmiðsins, og gengislækkun sem óhjákvæmilega myndi fylgja í kjölfarið, myndu því valda innlendum heimilum og fyrirtækjum verulegum búsifjum, til viðbótar því óhagræði og kostnaði sem há og sveiflukennd verðbólga myndi valda. Þessi kostnaður sést þegar hér á landi í vaxandi deilum á vinnumarkaði, átökum milli tekjuhópa og almennum mótmælum."
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira