Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað mest 1. apríl 2008 13:14 MYND/Stefán
Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað mest á fyrsta ársfjórðungi ársins borin saman við helstu vísitölur hlutabréfa í þróaðri löndum. Icelandic Group, FL Group, SPRON og Exista voru þau félög sem féllu um og yfir 50 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins. Frá janúar til mars lækkaði úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands um 20,1 prósent. Þar sem fjármálafyrirtæki vega mjög þungt í vísitölunni hér á landi hefur lánsfjárkreppan haft meiri áhrif til lækkunar en víða annars staðar. Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,4 prósent milli febrúar og mars og hefur ekki hækkað milli mánaða síðan í október. Sé þróunin skoðuð annars staðar sést að vísitölur í Japan og Þýskalandi hafa einnig fallið greitt á ársfjórðungnum. Vísitala Bloomberg yfir 500 stærstu félög í Evrópu sýnir fall um 15,6 prósent. Annars staðar á Norðurlöndum hafa hlutabréfavísitölur fallið minna, minnst í Danmörku eða um 7,8 prósent. Icelandic Group hefur verið í frjálsu falli og virðast fréttir um afdrif eða stöðu fyrirtækisins hafa lekið út á markaðinn án þess að tilkynning hafi borist Kauphöllinni. Þar á eftir koma fjármálafélögin FL Group, SPRON og Exista sem hafa fallið í verði um 50 prósent á tímabilinu. 365 miðlar, Eimskip og Eik banki féllu um meira en 30 prósent. Færeyjarbanki hækkaði um 35,7 prósent á fjórðungnum og er eina félagið sem sýndi svo góða frammistöðu á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira