Bönd á stjórnlausan glannaskap við skuldsettar yfirtökur 18. desember 2008 09:53
Aðalsteinn Hákonarson deilarstjóri eftirlitsdeilar ríkisskattstjóra segir að koma þurfi böndum á þann stjórnlausa glannaskap sem ríkt hefur við skuldsettar yfirtökur á fjármálamarkaðinum hérlendis. Aðalsteinn skrifar grein um málið í Tíund, fréttabréf ríkisskattstjóra, undir fyrirsögninni "Skuldsettar yfirtökur og öfugur samruni". Hann vill bæta lög um hlutafélög, tryggja að reikningsskil fyrirtækjanna hafi eðlilegt jarðsamband og búa þannig um hnútana að endurskoðendur þori að stíga til jarðar í návist viðskiptavina sinna án þess að óttast um að það fækki í kúnnahópnum við það. Með skuldsettum yfirtökum er átt við er eitt félag kaupir annað, borgar hluta af kaupverðinu með reiðufé en fær hitt að láni. Eftir kaupin er lánið svo sett yfir á félagið sem keypt var. Til að fegra myndina og draga úr þeirri staðreynd að félagið sem keypt var er orðið yfirskuldsett er viðskiptavild þess svo keyrð upp, oft úr öllu hófi, í bókhaldi félagsins. Aðalsteinn birtir töflu með grein sinni yfir þróun heildareigna, viðskiptavildar og eiginfjár 20 félaga í kauphöllinni. Þar kemur fram að viðskiptavildin eins og sér hefur fimmtánfaldast á tímabilinu frá 2003 til 2007. Árið 2003 skráðu þessi 20 félög viðskiptavild sína upp á samtals rúmlega 62 milljarða kr.. Í fyrra var þessi tala komin í rúmlega 931 milljarð kr.. "Í raun má halda því fram að viðskiptalífið hafi þrifist á vissum blekkingum sem snérust um að sýna eins góða fjárhagsstöðu fyrirtækjanna og mögulegt var með því að færa allar eignir þeirra á hæsta mögulega verði og stuðla þannig að því að gengi hlutabréfanna yrði sem allra hæst," segir Aðalsteinn.
Mest lesið Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira