Viðskipti innlent

Snjókastið komst á síður Financial Times

Financial Times skrifar í dag um snjókastið sem Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs og Malcolm Walker forstjóri Iceland verslunarkeðjunnar lentu í fyrir utan 101 hótel í gærdag.

Segir í FT að þeir félagar hafi lent í snjóboltakasti úr gagnstæðum áttum „crossfire" þegar mótmælendur gáfu reiði sinni lausan tauminn vegna efnahagshrunsins á Íslandi.

Tekið er fram að 101 hótel sé í eigu Ingibjargar Pálmadóttur og að þeir Jón Ásgeir og Malcolm Walker hafi sloppið ómeiddir frá snjókastinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×