Búast við bindandi tilboði í MK One í næstu viku 27. apríl 2008 07:22 Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group, segir marga hafa haft áhuga á að kaupa MK One
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, segir í samtali við Vísi að félagið búist við bindandi tilboði í bresku verslunarkeðjuna MK One í næstu viku en hún var sett í söluferli fyrr í þessum mánuði. "Við vonumst til að klára þetta sem fyrst. Það hafa margir lýst yfir áhuga á því að kaupa MK One," segir Gunnar við Vísi nú í morgun. Í Sunday Telegraph í dag er grein þar sem greint er frá því að birgjar MK One séu allt annað en ánægðir með þá ákvörðun stjórnenda félagsins að greiða ekki vörur vegna yfirvofandi sölu Baugs á keðjunni. Gunnar segir það ósköp eðlilegt að birgjarnir reyni allt til að fá borgað og beiti fjölmiðlum fyrir sig á meðan MK One er í söluferli. Greint var frá því um síðustu helgi að greiðslur til birgja hefðu verið stöðvaðar. Í frétt Sunday Telegraph í morgun er greint frá því að birgjarnir, sem skipta tugum, hafi sent MK One viðvörun þar sem verslunarkeðjunni er gert að greiða útistandi skuldir innan einnar viku. Samkvæmt frétt blaðsins nema skuldir MK One við birgjana milljónum punda. Einn birgjanna er Venus Technology sem blaðið segir að MK One skuldi 300 þúsund pund eða um 44 milljónir króna sem er þriðjungur af veltu þess. "Viðskipti okkar við MK One eru um 95% af öllum okkar viðskiptum. Við treystum algjörlega á fyrirtækið og erum ekki tryggðir fyrir neinu," segir Parminder Ghuman, einn stjórnenda Venus, í samtali við Sunday Telegraph.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira