Viðskipti innlent

Spáir 10% lækkun fasteignaverðs til ársins 2010

Greining Landsbankans spáir því að nafnverð fasteigna muni lækka um 10% frá upphafi þessa árs og þar til markaðurinn tekur við sér á nýjan leik á fyrri hluta árs 2010.

Í Vegvísi greiningarinnar segir að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% á milli mánaða í ágúst síðastliðnum eftir að hafa hækkað um 0,8% í júlímánuði samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins.

Síðastliðna þrjá mánuði hefur fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 0,5% að nafnvirði en lækkað frá áramótum um rúm 2%.

Á ársgrundvelli nemur hækkun fasteignaverðs 1,6% en var 2,6% í júlí. Raunverð fasteigna hefur hins vegar lækkað vegna mikillar verðbólgu, eða um 11,3% frá því á sama tíma í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×