Samkomulagi Seðlabanka fagnað Óli Kristján Ármannsson skrifar 17. maí 2008 06:00 Báðir ánægðir Geir H. Haarde forsætisráðherra og Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs Íslands, á Viðskiptaþingi 2008. Fréttablaðið/GVA
Viðskiptaráð fagnar samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér í gær. Sama gerði forsætisráðuneytið. „Tvíhliða gjaldeyrisskiptasamningar sem þessir eru mikilvægt fyrsta skref í eflingu trúverðugleika Seðlabanka Íslands og íslensks hagkerfis,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs. Jafnframt er áréttað að vegna þess hve vöxtur íslenska bankakerfisins hafi verið mikill undanfarin ár sé afar mikilvægt að innviðir og stofnanaumgjörð innanlands taki mið af því. „Í kjölfar aukinna lánalína telur Viðskiptaráð skynsamlegt að ríkissjóður leitist eftir erlendri lántöku í samstarfi við Seðlabanka Íslands til að auka gjaldeyrisforða verulega.“ Geir H. Haarde forsætisráðherra kveðst jafnframt fagna samkomulaginu. Í tilkynningu kemur fram að ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafi að undanförnu undirbúið margvíslegar aðgerðir til að styrkja aðgang Seðlabankans að erlendu lausafé og efla traust á fjármálakerfi og efnahagslífi hér. „Til þess að bæta virkni peningamálastefnunnar mun ríkisstjórnin meðal annars þegar undirbúa og birta trúverðuga áætlun um umbætur og breytingar á skipulagi Íbúðalánasjóðs,“ segir hann. Viðskiptaráð fagnar sérstaklega fyrirhuguðum breytingum á Íbúðalánasjóði.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Sjá meira