Viðskipti innlent

Kaupþing semur við Landsbankann um viðskiptavakt

Kaupþing banki hf. hefur samið við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. fyrir eigin reikning Landsbankans.

 

 

Samningurinn felur í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kaupþings banka hf. í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboð eru sett fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins.

 

 

Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi: Landsbankinn skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kaupþings banka hf. að lágmarki 40.000 hlutir (hver hlutur er 10,0 kr. að nafnverði) og skulu tilboð vera á því gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti.

 

 

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankinn skuldbindur sig til að vera þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 400.000.000,- að markaðsverði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×