Skuldatryggingarálag bankanna og ríkisins minnkar hratt 17. apríl 2008 10:59
Viðsnúningur hefur orðið á þróun skuldatryggingaálags bankanna en álagið fjarlægist nú óðfluga þann sögulega hátind sem álagið náði undir lok síðasta mánaðar. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að álag á skuldatryggingar Kaupþings til 5 ára stendur nú í 710 punktum sem er 340 punktum minna en um síðustu mánaðamót þegar álagið náði hápunkti í 1.050 punktum. Álagið á sambærilegar skuldatryggingar Glitnis hefur lækkað um 280 punkta frá því sem mest var og er nú 720 punktar og álag Landsbankans hefur lækkað um 400 punkta frá því í lok mars þegar álag á 5 ára skuldatryggingar Landsbankans náði hápunkti í 800 punktum. Mikla hækkun skuldatryggingaálags íslensku bankanna undanfarna mánuði má líklegast rekja að verulegu leyti til þess áhlaups sem talið er að gert hafi verið á íslenska hagkerfið af erlendum fjárfestum og vogunarsjóðum, og Fjármálaeftirlitið hefur nú til athugunar. Er líklegt að sá vandi sé nú úr sögunni. Skuldatryggingaálag á skuldbindingar íslenska ríkisins til fimm ára hefur einnig lækkað mikið frá því í upphafi mánaðar. Álagið stendur nú í 260 punktum en var 410 punktar í byrjun apríl. Til samanburðar má geta þess að álagið var innan við 20 punkta í október síðastliðnum og á bilinu 5-15 punktar síðastliðið sumar. Ljóst er að ef þessi viðsnúningur er varanlegur gætu skilyrði fyrir lántöku ríkissjóðs orðið ásættanleg innan skamms en eins og kunnugt er hyggst Seðlabankinn í samvinnu við stjórnvöld taka lán til að efla gjaldeyrisforðann þegar skilyrði á alþjóðlegum lánamörkuðum verða hagstæðari.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira