Með hnullung í skónum Jafet S. Ólafsson skrifar 26. nóvember 2008 06:00 Fyrir þremur mánuðum ritaði ég grein í Markaðinn, sem bar yfirskriftina „Með stein í skónum" en það er titillinn á smásagnasafni sem Ari Kr. Sæmundsen stórkaupmaður sendi frá sér í sumar, skemmtilegar sögur. Allir hafa einhvern tímann fengið stein í skóinn, annaðhvort hagrætt honum á milli tána, farið úr skónum og hent steininum, eða látið óþægindin ekki trufla sig umtalsvert. Ég líkti þessu við svokölluð jöklabréf sem valda óþægindum í íslensku efnahagslífi og munu sennilega að stórum hluta koma inn á íslenskan gjaldeyrismarkað á næstu mánuðum og verða til þess að íslenska krónan taki töluverða dýfu, en muni þar á eftir styrkjast nokkuð. Þetta var nokkuð hógvær samlíking og ekki óraði mig fyrir því að íslenskt fjármálalíf myndi nánast falla til grunna og íslenska krónan taka enn frekari dýfu. Það er engu líkara en steinvalan sé orðin að hnullungi og með það komast menn ekki hratt yfir. Það er jafnvel komið að því að við verðum að fara úr skónum og labba berfætt yfir hraunið. En íslenska þjóðin hefur gert það áður að ganga yfir úfið hraun á lélegum skóm og mun örugglega takast það líka núna, spurning hvað það tekur langan tíma að komast yfir verstu torfærurnar. Hvar liggja mistökin?Við Tjörnina Að líkindum hefur þessi ekki tyllt sér á bekk við Tjörnina í Reykjavík til að losa stein úr skónum, heldur til að lesa í félagsskap gæsanna. Greinarhöfundur líkti jöklabréfum fyrir nokkru í Markaðinum við stein í skó, en segir nú engu líkara en efnahagslífið sé nú með hnullung í skónum. Markaðurinn/ArnþórFólk vill fá að vita hvar mistökin liggja; hjá bönkunum, Seðlabankanum, ríkisstjórninni, Fjármálaeftirlitinu, útrásarvíkingunum. Það er ekki enn komið á daginn en ljóst er að við duttum í nánast alla drullupollana sem voru á leið okkar og skaðinn er gríðarlegur. En við eigum enn okkar nátturauðlindir; orkuna, sjávaraflann, iðnaðinn, landbúnaðinn og síðast en ekki síst kraftmikið fólk. Það er skiljanlegt að fólk sé reitt og það verður að upplýsa almenning betur en gert hefur verið. Fólk veit að verði því á stórfelld skyssa, getur beðið þess brottvísun úr starfi, en ekki virðist gegna sama máli hjá þeim sem bera ábyrgð á íslenskum fjármálaheimi, nú vill enginn bera ábyrgðina. Málið þarf að rannsaka sem fyrst, þannig að allir fái sem gleggstar upplýsingar. Orðstírinn laskaðurHinn góði orðstír sem Ísland og Íslendingar hafa skapað sér erlendis hefur beðið stórfellda hnekki, allt of langan tíma tók að fá lausn á Icesave-deilunni og allt í einu bjóðast Þjóðverjar til að lána Íslendingum fé til að leggja inn í tryggingarsjóð innstæðueigenda til að greiða út reikninga sem Kaupþing hafði stofnað í Þýskalandi. Þetta virtist koma ráðamönnum á óvart, hvar voru tengslin? Skilanefndin segir nógar eignir í bankanum. Af hverju koma ekki svona upplýsingar fyrr? Fjölmiðlar magna fréttirnar upp, þegar illa upplýstir fréttamenn telja allar innstæður Kaupþings og Landsbankans erlendis tapaðar og við þurfum helst að greiða þær allar! Vonandi duga eignir bankanna til að hægt sé að greiða erlendum innstæðueigendum það sem þeir höfðu lagt inn í bankana. Við þetta mundi ímynd okkar stórlega batna. Við verðum að gera út okkar hæfasta fólk til að styrkja ímyndina á nýjan leik og nota til þess alla sem hægt er, hina pólitísku fulltrúa þar sem það á við en ekki síður okkar góða íþróttafólk, listamenn og erlenda velunnara þessarar þjóðar - sem eru ófáir. Skortur á framkvæmdaféÁ næstu mánuðum þýðir lítið fyrir íslensk fyrirtæki, fjámálastofnanir og jafnvel orkufyrirtækin að leita eftir erlendri fjármögnun. Það getur því orðið erfitt um framkvæmdafé á næstu mánuðum. Íslenska ríkið (Seðlabankinn) verður að nýta alla lánamöguleika sem gefast til þess að endurlána til bankanna og annarra aðila þannig að hér verði hægt að halda uppi hæfilegum framkvæmdum. Hinir nýju bankar hafa verið seinir í gang og auðheyrt að það er mikið af vandamálum innan þeirra veggja, en fyrirtæki geta ekki endalaust beðið eftir því að bankarnir komist í gang. Það verður nokkuð djúp dýfa sem við tökum hér á næstu mánuðum en við höfum alla burði til að rífa okkur upp á nýjan leik, jafnvel með hnullunginn í skónum.Höfundur er framkvæmdastjóri Veigs ehf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Sjá meira
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun