Um 1.600 iPhone-símar í notkun hér Óli Kristján Ármannsson skrifar 26. mars 2008 06:00 iPhone-símarnir eru ekki með takka heldur snertiskjá. Síminn er augnayndi og ekki að undra að þeir sem á annað borð eru áhugasamir um nýjustu tækni láti sig langa í slíkan grip.
Meðan hér er einn ólöglegur Apple iPhone-farsími í notkun á hverja 196 íbúa eru 685 Danir um hvern slíkan síma. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins frá stærstu fjarskiptafyrirtækjum landsins eru hér um það bil 1.600 iPhone-símar í notkun. Í Danmörku eru þeir um 8.000 talsins, samkvæmt nýrri frétt Berlingske Tidende. Sala Apple iPhone-síma var lengi vel óheimil utan Bandaríkjanna vegna einkaréttarsamninga Apple við símafyrirtæki þar í landi. Þá höfðu símtækin fyrsta kastið ekki fengið löggilta CE-merkingu líkt og fjarskiptatæki á Evrópska efnahagssvæðinu þurfa að fá. Eftir að samningar náðust um sölu og dreifingu símanna hjá völdum símfyrirtækjum í Bretlandi og Frakklandi fengu þeir hins vegar slíka merkingu. Apple hefur hins vegar haldið sig við að selja símana ekki öðruvísi en í gegnum áskriftarsamninga símfyrirtækja. Til þess að nota hér iPhone-síma sem keyptur hefur verið í Bandaríkjunum, Englandi eða Frakkalandi þarf að breyta hugbúnaði símans þannig að hann sé ekki lengur læstur inni á kerfi viðkomandi símfyrirtækis. Þá eru enn seldir í Bandaríkjunum símar án CE-merkingar, en þeir eru ólögleg fjarskiptatæki hér. Ekki þarf mikla tækniþekkingu til að breyta símum þannig að þeir gagnist notendum hér, en hugbúnaður til þess og leiðbeiningar eru fljótfundin á netinu. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa nokkrir einstaklingar engu að síður haft af því tekjur að breyta símum fyrir fólk og hafa þá rukkað nokkur þúsund krónur fyrir viðvikið. Ljóst er að hér á landi hefur orðið sprenging í fjölda iPhone-síma í notkun. Síðasta haust var frá því greint á vef Vísis að samkvæmt heimildum væru um 40 „óskráðir og ólöglegir“ iPhone-símar í notkun hér á landi, en þá höfðu tækin ekki enn fengið CE-merkingu. Fjölgunin nemur 3.000 prósentum. Símarnir eru nokkuð vinsælir enda þykja þeir ekki dýrir miðað við jafn tæknivætt tæki með svipaða möguleika, en á vef Apple er tækinu lýst sem „breiðtjalds-iPod með snertiskjá og framúrskarandi internet samskiptatæki með tölvupósti, vafra, leit og kortum“. Á móti kemur að iPhone styður ekki net þriðju kynslóðar farsímatækni, auk þess sem til skamms tíma hefur skort stuðning við Microsoft Exchange, en slíkur stuðningur er forsenda þess að samtengja megi tækið tölvupóstforritum Windows-stýrikerfisins. Í frétt Berlingske er bent á að iPhone hafi verið í sölu frá því í júní í fyrra, en í janúar hafi Apple upplýst að fjórar milljónir tækja hafi verið seldar. Apple hefur staðið í nokkrum slag við kaupendur sem aflæst hafa símtækjunum. Þannig gaf Apple fyrir áramót út hugbúnaðaruppfærslu sem varð til þess að símar læstust aftur. Ekki liðu hins vegar nema nokkrir dagar þar til „tölvuþrjótar“ höfðu brotið þá læsingu á bak aftur líka.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira