Eru ósammála um túlkun IFRS-reglna Óli Kristján Ármannsson skrifar 26. mars 2008 00:01 Á Aðalfundi Kaupþings Sigurður Einarsson stjórnarformaður og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri. Sigurður sagði á aðalfundi bankans í byrjun mars að stefnt væri á upptöku evru sem starfrækslu- og kauphallarmyntar bankans frá og með næsta rekstrarári. Markaðurinn/Anton
Ekki er heimilt að leggja saman evru og danska krónu við mat á því hvort evra geti verið starfrækslugjaldmiðill fyrirtækis. Þetta kemur fram í rökstuðningi ákvörðunar Ársreikningaskrár vegna umsóknar Kaupþings um heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli. Á aðalfundi Kaupþings í marsbyrjun tilkynnti bankinn að umsóknin hefði verið dregin til baka og upptöku evru í bankanum frestað fram yfir áramót. Ársreikningaskrá hafði hins vegar heimilað Kaupþingi að taka upp evru sem starfrækslumynt í úrskurði sínum 22. desember síðastliðinn en einungis að því gefnu að samruninn við hollenska bankann NIBC yrði að fullu frágenginn strax í byrjun þessa árs. Var mat stofnunarinnar að eftir slíkan samruna uppfyllti bankinn skilyrði laga um að evra gæti talist starfrækslumynt hans. Þetta gekk sem kunnugt er ekki eftir og var samruni bankanna raunar blásinn af í janúarlok. Þá má segja að heimildin hafi verið marklítil enda hafði Kaupþing ekki ráðrúm nema milli jóla og nýárs til að uppfylla skilyrðið um samrunann. Hins vegar má lesa úr úrskurðinum að með því að leggja saman danska krónu og evru þóttist Kaupþing vera búið að sýna fram á slíkt vægi gjaldmiðlanna saman að réttlætti að evra teldist starfrækslumynt bankans. Dönsk króna og evra eru sem kunnugt er tengdar með samningi milli Seðlabanka Danmerkur og Seðlabanka Evrópu, þar skiptagengið er tæplega 7,5 og vikmörk 2,5 prósent, en sögulega hefur munað mun minna á gjaldmiðlunum. Í ljósi þessa og að Ársreikningaskrá taldi að með samruna við NIBC væri vægi evru í rekstri bankans komið yfir tilskilin mörk má hins vegar áætla að ekki þurfi mikið að breytast í rekstri Kaupþings til þess að evran nái því vægi í rekstrinum til að verða starfrækslumynt að mati Ársreikningaskrár. Meira ber hins vegar í milli í túlkun Ársreikningaskrár og Kaupþings á lögum um ársreikninga og alþjóðlegum reikningskilastöðlum (IFRS). Kaupþing telur að samkvæmt stöðlunum beri bankanum að hverfa frá notkun krónunnar. Á þetta sjónarmið fellst Ársreikningaskrá ekki. Samkvæmt heimildum Markaðarins telur Kaupþing að matið á því hvort IFRS-reglur knýi á um upptöku annarrar starfrækslumyntar og ákvörðun þar að lútandi sé á herðum stjórnar hvers fyrirtækis og að í raun þurfi ekki sækja um til Ársreikningaskrár, en falli félög ekki undir IFRS-staðla þá þurfi að sækja um. Á þetta fellst Ársreikningaskrá ekki heldur og segir ákvæði sem bankinn bendir á í þessa átt eiga við um leiðbeiningnar við „umreikning til framsetningargjaldmiðils þegar hann er annar en starfrækslugjaldmiðill“. Innan Kaupþings þykir tæpast samræmast anda laga um Ársreikninga að leggja stein í götu fyrirtækis sem er bæði með tæp 80 prósent af tekjum og tæp 80 prósent af skuldum í annarri mynt en þeirri íslensku og vill skipta yfir í aðra starfrækslumynt.
Mest lesið „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira