Viðskipti innlent

Þorsteinn hættir sem stjórnarformaður Glitnis

Þorsteinn M Jónsson
Þorsteinn M Jónsson

Þorsteinn M. Jónsson mun ekki sækjast eftir því að sitja áfram sem stjórnarformaður Glitnis. Nokkur breyting verður á stjórn bankans.

Björn Ingi Sveinsson mun sitja áfram ásamt Jóni Sigurðssyni forstjóra FL Group.

Haukur Guðjónsson, Katrín Pétursdóttir, Pétur Guðmundsson, Skarphéðinn Berg Steinarsson og Þorsteinn M. Jónsson munu öll hætta.

Í þeirra stað koma inn Hans Kristian Hustad, Kristinn Þór Geirsson, Kristín Edwald, Sigurður G. Guðjónsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.

Aðalfundur bankans fer fram eftir viku. Frestur til þess að skila inn tilnefningum til stjórnar rann út í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×